Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Lovísa Arnardóttir skrifar 25. ágúst 2026 22:57 Auðdís segir hræðilegt að horfa upp slysið í gær. Aðsend Auðdís Tinna Hallgrímsdóttir leiðsögumaður á Austurlandi varð vitni að því í gær þegar ferðamaður drukknaði við Stuðlagil. Hún fer daglega með ferðamenn en segir aðstæður óöruggar og verulega þörf á betri fallvörnum sem og björgunartækjum við gilið. Ferðamaðurinn féll ofan í ána. „
Ég get ekki sagt að gærdagurinn hafi verið besti vinnudagur lífs míns,“ segir Auðdís Tinna um atvikið í færslu á Facebook-síðu sinni en hún, ásamt fjölda annarra, varð vitni að slysinu í gær. Maðurinn sem lést var erlendur ferðamaður á fertugsaldri. Umfangsmikil björgunaraðgerð hófst eftir að maðurinn féll í Jöklu en tilkynning um slysið barst rúmlega eitt í gærdag. Um hundrað manns komu að leitinni, samkvæmt tilkynningu frá lögreglu. Maðurinn fannst látinn um klukkan 22. Kafarar fundu lík mannsins í hyl í Jöklu skömmu eftir að þeir fóru ofan í ána. „Ég var nýmætt með minn hóp að ganga niður að nýja, fína útsýnispallinum við Stuðlagil Klausturselsmegin þegar við heyrum hróp og köll. Þá sé ég mann í ánni og átta mig á að ekki er allt með felldu. Ég hringi strax á Neyðarlínuna, hleyp meðfram efri bökkunum til að meta aðstæður með lögregluna á línunni og reyni eftir bestu getu að halda þeim eins upplýstum og hægt var um aðstæður og ástand. Fólk úti um allt byrjar að hlaupa til að reyna einhvers konar björgun en án árangurs. Þetta er án efa eitt það erfiðasta sem ég hef lent í – að horfa á manneskju deyja og geta ekkert gert í því,“ segir Auðdís í færslunni sem er hægt að lesa hér. Aðstæður geta verið mjög hættulegar við ána. Aðsend Í samtali við fréttastofu segir Auðdís að hún komi að gilinu nærri daglega og sé alltaf með í maganum yfir því hverju gestirnir geti tekið upp á. Hún reyni alltaf að vísa gestum beint að útsýnispalli en sumir séu hugaðri en aðrir og reyni ýmislegt til að fá góða mynd. Hún segir erfitt að ekkert sé girt af og að á svæðinu séu heldur engar bjargir, falli fólk ofan í. Hún myndi, til dæmis, vilja sjá björgunarhringi, línu yfir ána auk betri fallvarna. Óvenju mikil hróp og köll Auðdís segist ekki hafa séð þegar maðurinn féll ofan í ána og viti því ekki tildrög slyssins. Hún hafi verið við efri bakkana og ekki séð til. „Þetta voru óvenjulega mikil hróp og köll og fljótlega sé ég mann í ánni og sé strax að það er ekki allt í lagi. Það er eins og hann sé að reyna að koma hausnum upp úr ánni en nái því ekki,“ segir hún og að þá strax hafi hún hringt í Neyðarlínuna og reynt að fylgja manninum eftir til að sjá hvort hann hafi getað andað og hvort einhver hafi getað aðstoðað hann. Fljótlega hafi hún séð að hann væri algjörlega bjargarlaus. Fjöldi fólks hafi reynt að aðstoða manninn en aðstæður hafi verið erfiðar á staðnum og hann fljótlega verið kominn of langt. Svo hafi hún séð hann sökkva ofan í. „Aðstæður þarna eru þannig að þú ert ekkert að stökkva út í til að bjarga manni, þetta er ísköld á og mjög straumhörð.“ Útsýnispallurinn við Stuðlagil. Aðsend Auðdís segist reglulega finna fyrir því í sínu starfi hversu fjársveltir innviðir í kringum ferðamannastaði séu á Austurlandi. Þetta sé ein birtingarmynd þess. Nýlega talaði hún í fjölmiðlum um vegakerfið sem hún segir aðra birtingarmynd. Auðdís segist aðspurð enginn öryggissérfræðingur en að hún telji að það gæti skipt sköpum að til dæmis hafa björgunarhringi á staðnum eða línu yfir ána til að grípa í ef fólk fellur út í. „Mér líður ekkert vel að fara með fólk þarna, það er ekkert girt af, stundum er fólk í hóp sem er hugaðri en annað,“ segir hún og að stundum virðist ekki skipta máli hversu vel og mikið hún fari yfir öryggismálin, það hlusti ekki allir. Tvær ferðir eftir í sumar Sjálf segist hún alltaf fara beint með fólk að útsýnispallinum, þar sé grindverk og öruggur staður til að skoða. Hún segir lítið eftir af ferðamannasumrinu en vonar að hægt verði að grípa til aðgerða fyrir næsta sumar og þannig tryggja öryggi allra á svæðinu. „Það eru tvær ferðir eftir í vikunni og svo er seasonið búið. Það er restin af þessu sumri. Ég ætla að fara öðruvísi að núna, ég ætla ekki að hleypa neinum nálægt brúninni, ég held í hendurnar á þeim núna. Eins og gömul amma,“ segir hún að lokum. Annað andlátið á tveimur árum Stuðlagil hefur verið vinsæll viðkomustaður ferðamanna á Austurlandi undanfarin ár. Erlend ferðakona á fertugsaldri lést þegar hún féll í ána í október árið 2024. Þremur og hálfu ári áður komu nærstaddir konu sem féll í klettum við gilið til bjargar.
Björgunarsveitir Múlaþing Stuðlagil Ferðaþjónusta Lögreglumál Fljótsdalshreppur Öryggi á ferðamannastöðum Tengdar fréttir Leita áfram í fyrramálið Björgunaraðgerðir standa enn yfir í Stuðlagili við leit að manni sem féll í Jöklu fyrr í dag. Lögregla segir að dregið verði úr leitinni von bráðar þegar myrkur skellir á en henni fram haldið á morgun. 24. ágúst 2026 21:08 Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Leit stendur enn yfir að manni sem talið er að hafi fallið út í Jökulsá á Brú við Stuðlagil. Hátt í hundrað manns taka þátt í aðgerðinni frá öllum björgunarsveitum á Austurlandi en tilkynning barst um atvikið rúmlega eitt í dag. 24. ágúst 2026 18:38 Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Allt tiltækt lið björgunarsveita á Austurlandi hefur verið kallað út vegna tilkynningar um að maður hafi fallið út í Jöklu í Stuðlagili. Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið austur með straumvatnsbjörgunarmenn frá höfuðborgarsvæðinu. 24. ágúst 2026 14:16 Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Rukka erlenda nemendur um milljónir Innlent Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Erlent Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Sjá meira
Leita áfram í fyrramálið Björgunaraðgerðir standa enn yfir í Stuðlagili við leit að manni sem féll í Jöklu fyrr í dag. Lögregla segir að dregið verði úr leitinni von bráðar þegar myrkur skellir á en henni fram haldið á morgun. 24. ágúst 2026 21:08
Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Leit stendur enn yfir að manni sem talið er að hafi fallið út í Jökulsá á Brú við Stuðlagil. Hátt í hundrað manns taka þátt í aðgerðinni frá öllum björgunarsveitum á Austurlandi en tilkynning barst um atvikið rúmlega eitt í dag. 24. ágúst 2026 18:38
Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Allt tiltækt lið björgunarsveita á Austurlandi hefur verið kallað út vegna tilkynningar um að maður hafi fallið út í Jöklu í Stuðlagili. Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið austur með straumvatnsbjörgunarmenn frá höfuðborgarsvæðinu. 24. ágúst 2026 14:16