Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 27. ágúst 2026 07:00 Sara Magnúsdóttir er tónlistarkona í New York og ræddi við blaðamann um lífið og ævintýrin þar. Aðsend „Það er svo ótrúlega margt í boði í New York. Borgin iðar af lífi og alls konar list. Ég hef fundið ótrúlega gott samfélag í gegnum salsað og fer mikið út með vinum mínum að dansa,“ segir hin 31 árs gamla Sara Magnúsdóttir sem hefur verið búsett í New York í sjö ár. Hún starfar sem tónlistarkona, píanó-og orgelleikari, tónskáld og útsetjari, elskar salsa-dans og þrífst vel í lifandi umhverfi stórborgarinnar.
Sara hefur náð góðum árangri í tónlistinni bæði hérlendis og erlendis en hún var meðal annars valin Bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum í ár. Blaðamaður ræddi við Söru um lífið, ævintýrin og hversdagsleikann úti. Sara flutti út til New York til að fara í háskólanám í jazz-tónlist og starfar nú sem píanó-og orgelleikari. Aðsend Hvað varð til þess að þú fluttir út og hvar býrðu? Ég bý í New York borg. Ég flutti fyrst út til Bandaríkjanna til að fara í háskólanám í jazz tónlist í William Paterson University í New Jersey. Ég kláraði bachelor og meistaragráðu en hef svo haldið áfram að búa hér á svæðinu. Ég vissi alltaf að ég ætlaði mér að búa í útlöndum í einhvern tíma og mig langaði líka í framhaldsnám í jazz tónlist, en það var ekki í boði á Íslandi á þeim tíma. Sara vissi alltaf að hana langaði að búa erlendis.Aðsend Hvað ertu að gera þar? Ég er sjálfstætt starfandi tónlistarkona þannig að ég spila alls konar gigg á jazz-stöðum, veitingastöðum og fleira. Ég kenni líka á píanó og geri ýmislegt fleira. Ég er alltaf að taka að mér einhver skemmtileg hliðar-„hustles“. Sara hefur tekið að sér ýmis gigg bæði hérlendis og erlendis. Hér er hún með Góa Karlssyni, Sölku Sól og Samúel J. Samúelssyni á æfingu.Aðsend Hefurðu búið annars staðar erlendis? Nei ekki ennþá, en mig langar það. Ég hef eytt nokkrum mánuðum í Suður-Ameríku í ferðalagi, aðallega í Kólumbíu og langar að eyða meiri tíma í Kólumbíu. View this post on Instagram A post shared by Sara Magnúsdóttir (@sara_magnusdottir) Hvernig er daglegt líf og hversdagsleikinn úti hjá þér? Dagarnir eru svo ótrúlega misjafnir hjá mér. Sumar vikur eru með mörg gigg og sumar með engin. Ég kenni á píanó í hverri viku samt. Ég vinn svo að ýmsum verkefnum fyrir sjálfa mig, ég þarf að æfa mig á hljóðfærin mín, útsetja tónlist og er líka að semja tónlist fyrir næstu plötu. Þegar ég fór til Kólumbíu varð ég ástfangin af salsa dansi og það er orðið stór partur af mínum hversdagsleika hérna í NYC í dag, ég fer í tíma nokkrum sinnum í viku í Queens. View this post on Instagram A post shared by Sara Magnúsdóttir (@sara_magnusdottir) Hvað er skemmtilegast við lífið úti? Það er svo ótrúlega margt í boði í New York. Borgin í alvöru iðar af lífi og alls konar list. Ég hef fundið ótrúlega gott samfélag í gegnum salsa-dansinn og fer mikið út með vinum mínum að dansa. Ég elska að fara á ströndina á sumrin, það eru nokkrar mismunandi strendur í boði í kring um borgina og það eru þvílík lífsgæði að geta tekið lestina í þrjátíu mínútur og verið komin á eina af þeim til dæmis. Það er líka frábært að geta lifað bíllausum lífsstíl. Svo er gaman að Íslendingar í borginni halda saman og hittast nokkuð reglulega, hef eignast góða vini og kunningja sem ég hefði líklega aldrei kynnst á Íslandi. Sara hefur eignast marga vini úti, til dæmis í gegnum salsa-dansinn og vinnuna. Aðsend En mest krefjandi? Borgin er dýr og getur verið yfirþyrmandi stundum. New York er dýr og getur verið yfirþyrmandi að sögn Söru en kostirnir eru töluvert fleiri.Aðsend Hvað stendur upp úr frá lífinu úti hingað til? Það hefur verið gaman að fá að spila gigg á „alvöru“ jazz tónleikastöðum í fyrsta sinn, eins og The Blues Alley í Washington DC og The Django í New York til dæmis. Sömuleiðis að fá tækifæri í gegnum skólann eins og að útsetja stórhljómsveitar-verk fyrir jazz-goðsögnina Joe Lovano. Annars er bara æðislegt að búa í stórborg og prófa hluti sem ég hefði annars aldrei gert. Það kennir manni að vera opin fyrir allskonar hlutum. Það er líka svo frábær matarmenning í borginni sem kemur með fjölmenningunni, það er æðislegt að fá að borða svona góðan mat frá öllum heimshornum. View this post on Instagram A post shared by Sara Magnúsdóttir (@sara_magnusdottir) Hvaða hverfi er í uppáhaldi og afhverju? Ef ég má nefna fyrst garð en ekki hverfi þá ég elska Prospect Park garðinn, ég bý rétt hjá honum. Annars er Fort Greene í Brooklyn til dæmis hverfi sem mér finnst mjög næs, fallegur arkitektúr og svo mikið að góðum búðum og veitingastöðum. Svo verð ég að nefna Jackson Heights í Queens fyrir Suður-Ameríska menningu. View this post on Instagram A post shared by Sara Magnúsdóttir (@sara_magnusdottir) Uppáhalds kaffihús og veitingastaður úti? Sunset/Sunrise kaffihúsið í gamla hverfinu mínu í Bushwick. Veitingastaður er til dæmis Soda Club í East Village sem er æðislegur ítalskur vegan staður. Sara býr í Brooklyn og býr yfir góðum ráðum varðandi hverfið.Aðsend Hvernig er draumadagur fyrir þig úti? Sofa út, fara og fá mér ískaffi og hitta vinkonu og við tækjum lestina á ströndina með eitthvað geggjað nesti. Svo myndi dagurinn enda á því að fara út að dansa salsa. Draumadagur hjá Söru felur meðal annars í sér ískaffi, salsa dans og ströndina.Aðsend Hefurðu fundið fyrir heimþrá? Já, ég get ekki neitað því. Heimþráin lætur stundum á sér kræla en þá er gott að geta skellt sér á ströndina í sólinni.Aðsend Hvað er framundan? Ég verð áfram á Íslandi næstu vikur, að spila nokkur gigg og fara í brúðkaup hjá vinkonum mínum. Svo verður vonandi smá sumar eftir þegar ég kem til New York og ætla að njóta þess. View this post on Instagram A post shared by Sara Magnúsdóttir (@sara_magnusdottir) Hvað hefur komið þér mest á óvart við lífið úti? Hvað það er hægt að gera, finna allt sem þér dettur í hug og finna fólk sem vill gera sömu hluti og þú. Joe Lovano og Sara unnu saman að skemmtilegu verkefni og ævintýrin leynast á hverju horni úti. Aðsend Hefurðu lent í einhverju steiktu eða fyndnu úti? Neðanjarðarlestin í New York er endalaus uppspretta skrítinna atvika. Það eru oft ráðstefnur eins og Comic Con eða Santa Con í borginni og allt í einu er lestin full af ofurhetjum eða jólasveinum. Um daginn kom maður í kúrekabúning inn og fór að gera upphífingar á handföngunum í loftinu fyrir framan mig. Svo er fólk alltaf að ferja húsgögn eða eitthvað skrítið í lestinni. Ég hef séð fólk með plöntur, fiskabúr, sófa og ýmislegt. Píanóstóll er líklega það skrítnasta sem ég hef sjálf ferjað í lestinni. Jú eða málverk. Píanóstóllinn var reyndar mjög þægilegur, það voru svona 32 gráður þennan dag og gat fengið mér sæti á honum þegar ég var þreytt. Sara og vinir hennar ferðast með lestinni á milli gigga og þar verða ýmsar skrautlegar uppákomur.Aðsend Sérðu fyrir þér að búa alltaf úti eða kallar Ísland á þig? Ísland er farið að kalla nokkuð sterkt verð ég að viðurkenna, ég hef verið að koma frekar oft heim undanfarið til að spila tónleika hérna. Ég kem til baka á næstu árum líklega. En ég held ég verði alltaf áfram með annan fótinn út í heimi einhvers staðar, eins mikið og ég mögulega get.
Íslendingar erlendis Bandaríkin Tónlist Mest lesið Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni Lífið Alræmt hús á Túngötu til sölu Lífið Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Lífið „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Lífið Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Menning Tim Curry er látinn Bíó og sjónvarp Svandís í ritstjórastól Menning Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lífið Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Lífið Fleiri fréttir Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Orðin háð því að vera „enginn“ Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Myndaveisla: Litagleði og lögregla á Tónaflóði á Arnarhóli Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Steinn Ármann er látinn Kjóllinn brann korter í brúðkaup Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Sjá meira