Áhrifamikil rómantísk gamanmynd fær framhald Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 25. ágúst 2026 13:06 McCounaghey og Hudson í How to Lose a Guy in 10 Days. Paramount Aðdáendur rómantísku gamanmyndarinnar How To Lose a Guy in Ten Days geta sannarlega glaðst yfir því að nú er framhaldsmynd í bígerð. Kvikmyndin kom út árið 2003 og naut gríðarlegra vinsælda um allan heim.
Hollywood-stjörnurnar Kate Hudson og Matthew McConaughey fara með aðalhlutverkin í fyrstu myndinni. Karakterar þeirra eru báðir metnaðarfullir í atvinnulífinu og eru með sitt hvort veðmálið í gangi. Hudson leikur blaðakonuna Andie Anderson sem ætlar að skrifa grein sem fjallar um það hvernig þú fælir frá þér strák á tíu dögum. Karakter McConaughey, Benjamin Barry, starfar í auglýsingabransanum og til að tryggja sér stórt verkefni hjá demantaframleiðanda þarf hann að láta stelpu verða ástfangna af sér á tíu dögum. Þegar þau hittast svo á bar verður þessi blanda ansi kómísk. Kvikmyndin hafði mikil áhrif á stefnur og strauma í tísku og dægurmenningu. Gulur kjóll sem Kate Hudson klæðist í dramatískri senu í kvikmyndinni er til dæmis enn í dag annað hvort í fataskáp eða á óskalista fjölda tískuunnenda. Margir unglingar heyrðu líka lagið You're so vain með Carly Simon í fyrsta skipti við það að horfa á kvikmyndina, þó í ansi vandræðalegum flutningu tvíeykisins. Umræddur gulur kjóll sem Hudson klæðist í myndinni. Paramount Kate Hudson er framleiðandi þessarar framhaldsmyndar en þó er ekki búið að tilkynna hverjir fara með hlutverk. Fjölmiðlar vestanhafs segja þó miklar líkur að bæði tvö komi fyrir í nýju myndinni og það yrði forvitnilegt að sjá hvert lífið hefur farið með Andie og Benjamin síðastliðin 23 ár.
Bíó og sjónvarp Hollywood Mest lesið Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Lífið Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Lífið Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Lífið 50+: Er ég að verða heyrnarlaus eða eru allir farnir að öskra? Áskorun Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Lífið Skemmtilega söguhornið: Allir geta orðið eins og skólatöskur í framan! Áskorun Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun Fleiri fréttir La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Sjá meira