Hyggjast ógilda vegabréfsáritanir allt að 200 þúsund hælisleitenda Hólmfríður Gísladóttir skrifar 25. ágúst 2026 07:58 Pigott segir það skjalafals að sækja um tímabundna vegabréfsáritun með það í huga að sækja svo um hæli þegar til Bandaríkjanna er komið. Getty/John Moore Bandaríkjastjórn hefur í hyggju að fella niður vegabréfsáritanir einstaklinga sem komu til Bandaríkjanna sem ferðamenn eða í viðskiptaerindum en sóttu síðan um hæli þegar inn í landið var komið.
Ákvörðunin gæti haft áhrif á allt að 200 þúsund einstaklinga. Talsmaður utanríkisráðuneytisins sagði í tilkynningu í gær að Donald Trump Bandaríkjaforseti og Marco Rubio utanríkisráðherra væru staðráðnir í því að koma þeim skilaboðum á framfæri að vegabréfsáritanir væru forréttindi. Tommy Pigott sagði tímabundnar vegabréfsáritanir vegna ferðalaga og viðskipta gefnar út á þeim forsendum að viðkomandi ætluðu sér að snúa aftur til heimalands síns. Yfirvöld vestanhafs hafa hætt vinnslu hælisumsókna, þrátt fyrir að alríkisdómstólar hafi sagt það andstætt lögum. Alríkisdómstóll í New York úrskurðaði á föstudag að stjórnvöldum væri óheimilt að hætta útgáfu vegabréfsáritana til einstaklinga frá 75 ríkjum á bannlista yfirvalda. Dómarinn í málinu sagði bannið grundvallað á þeirr staðhæfingu utanríkisráðuneytisins að einstaklingar frá þessum ríkjum myndu enda á bótum í Bandaríkjunum. Það stæðist ekki skoðun. Utanríkisráðuneytið fyrirskipaði sendiráðum og -skrifstofum að fresta öllum viðtölum vegna umsókna um vegabréfsáritanir þar til starfsmenn hefðu fengið þjálfun í nýrri og strangari nálgun. Samkvæmt New York Times mun þjálfunin fara fram í þessari viku, víðast hvar. Hún er meðal annars sögð fela í sér að starfsmenn beri kennsl á umsækjendur sem eru líklegir til að verða baggi á hinu opinbera ef þeir fá ótímabundna heimild til að búa og starfa í Bandaríkjunum.
Hælisleitendur Bandaríkin Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Fleiri fréttir Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Sjá meira