Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Áróra L Davíðsdóttir skrifar 24. ágúst 2026 16:44 Öðrum bílnum sem lenti í árekstrinum var ekið á vitlausum vegarhelmingi og skall saman við lögreglubíl. Getty/Owen Humphreys Tólf hafa verið handteknir í tengslum við rannsókn lögreglu á aðdraganda banaslyss nærri Middlesbrough í Bretlandi, þar sem Volkswagen Passat-bíll og lögreglubíll skullu saman. Sjö létu lífið í árekstrinum á laugardagsmorgun.
Allir fimm farþegar Passat-bílsins voru úrskurðaðir látnir á vettvangi. Þeir voru fimm ungir menn á aldrinum 17 til 23 ára. Í nýrri tilkynningu frá lögreglunni í Cleveland í Jórvíkurskíri segir að grunur sé um að þeir hafi tengst skipulagðri glæpastarfsemi. Fjórir þeirra hafi komist í kast við lögin og hlotið dóm. Tveir lögreglumenn létust í árekstrinum. „Lögreglan í Cleveland hefur hafið umfangsmikla rannsókn á þeim afbrotum sem áttu sér stað fyrir banaslysið sem kostaði sjö manns lífið, þar á meðal lögregluþjónana Matthew Blades og Tom Clough,“ segir í tilkynningu. Þrjár konur og níu karlar, á aldrinum 19 til 61 árs, hafi verið handtekin í tengslum við víðtæka rannsókn lögreglunnar í Cleveland. Þau séu grunuð meðal annars um vopnalagabrot og þátttöku í skipulagðri glæpastarfsemi. Lögregla segir að sér hafi borist tilkynningar um glæfralegan akstur tveggja bíla á svæðinu fyrir slysið. Báðir hafi verið með falsaðar bílnúmeraplötur. Annar þeirra hafi verið Passat-bíllinn sem skall saman við lögreglubílinn. Aðrir lögreglumenn hafi veitt Passat-bílnum eftirför þangað til um tíu sekúndum fyrir áreksturinn, segir í umfjöllun breska ríkisútvarpsins. Lögreglumennirnir sem lentu í árekstrinum hafi verið að sinna öðrum verkefnum.
Bretland England Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira