Formúla 1

Russell vann sprettinn í þriðja sinn

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Russell hefur verið seigur á sprettinum en bíður eftir alvöru sigri. 
Russell hefur verið seigur á sprettinum en bíður eftir alvöru sigri.  Mark Sutton - Formula 1/Formula 1 via Getty Images

George Russell varð fyrstur í sprettkeppni Formúlu 1 kappakstursins í Hollandi. Hann var fremstur alla 24 hringina og kom í mark 1,3 sekúndu á undan Charles Leclerc.

Þetta er í þriðja sinn sem Russell vinnur sprettkeppni á þessu tímabili en hann bíður enn eftir sínum fyrsta stóra sigri og situr 56 stigum á eftir Kimi Antonelli á heimslistanum, eftir úrslit dagsins.

Veðrið varð ekki til vandræða fyrir keppendur í dag en eiginlega um leið og þeir komu í mark byrjaði að hellidemba. Russell gat því keyrt brautina þurra en fagnaðarlætin fóru fram í grenjandi rigningu.

Formúlu 1 kappaksturinn í Hollandi er í beinni útsendingu á Sýn Sport Viaplay alla helgina.

Tímataka hefst klukkan 14:00 í dag, fyrir keppnina sjálfa sem hefst klukkan 13:00 á morgun.

Úrslit sprettkeppninnar

  1. George Russell, Mercedes (+8 stig á heimslista)
  2. Charles Leclerc, Ferrari (7 stig)
  3. Lando Norris, McLaren (6 stig)
  4. Kimi Antonelli, Mercedes (5 stig)
  5. Oscar Piastri, McLaren (4 stig)
  6. Max Verstappen, Red Bull (3 stig)
  7. Lewis Hamilton, Ferrari (2 stig)
  8. Pierre Gasly, Alpine (1 stig)



Fleiri fréttir

Sjá meira


×