Fullveldi - ættaróðal eða verkfæri sjálfstæðrar þjóðar? Martha Árnadóttir skrifar 21. ágúst 2026 12:30 Við Íslendingar elskum fullveldið okkar. Það er skiljanlegt. Við þurftum að berjast fyrir því og saga sjálfstæðisbaráttunnar er samofin sjálfsmynd okkar sem þjóðar - þó seinni tíma sagnfræðingar hafi varpað nýju og skemmtilegu ljósi á þá sögu alla. En hvað þýðir það í raun að vera fullvalda? Lagalega svarið er tiltölulega einfalt. Fullvalda ríki fer með æðsta vald á eigin yfirráðasvæði. Þar með er þeirri skýringu lokið. En í raunheimum er fullveldi mun flóknara. Lítið ríki getur haft óskoraðan rétt til að taka sínar eigin ákvarðanir en samt haft lítil áhrif á heiminn í kringum sig. Það ræður ekki alþjóðlegum mörkuðum, gengi gjaldmiðla, tæknibyltingum, loftslagsbreytingum eða öryggisumhverfi sínu. Það getur heldur ekki komið í veg fyrir að ákvarðanir stærri ríkja og ríkjabandalaga hafi áhrif á það. Manneskjan verður ekki frjáls með því að neita öllum skuldbindingum. Við göngum inn í samfélag, samþykkjum lög, greiðum skatta og gerum samninga. Með því afsölum við okkur hluta af frelsi okkar en öðlumst annað og meira frelsi í staðinn: öryggi, réttindi og möguleika til að gera hluti sem við getum aldrei gert ein. Þegar ríki gera með sér samninga samþykkja þau reglur sem þau geta ekki lengur einhliða breytt. Þegar þau ganga í alþjóðastofnanir skuldbinda þau sig til að taka tillit til annarra. Þegar þau taka þátt í varnarsamstarfi, viðskiptabandalögum eða sameiginlegum mörkuðum takmarka þau að einhverju leyti frelsi sitt til að gera nákvæmlega það sem þeim sýnist. Við köllum þetta stundum framsal fullveldis. En er það alltaf rétt? Hvað ef ríki fær á móti meiri getu til að verja hagsmuni sína? Meiri áhrif á reglurnar sem það býr við? Meira öryggi og sterkari stöðu gagnvart ríkjum og fyrirtækjum sem eru margfalt stærri en það sjálft? Hefur það þá misst fullveldi - eða beitt því? Við erum tæplega 400 þúsund manna þjóð í heimi þar sem stærð skiptir máli. Við erum háð alþjóðaviðskiptum, erlendum mörkuðum, fjármálakerfum, tæknifyrirtækjum og varnarsamstarfi. Stór hluti þeirra reglna sem íslenskt atvinnulíf og samfélag starfar eftir verður til í samstarfi ríkja langt umfram okkar eigin landamæri. Við getum auðvitað valið að standa utan við sumt af þessu. En það eitt tryggir ekki að ákvarðanir annarra hætti að hafa áhrif á okkur. Og þar verður spurningin um Evrópusambandið áhugaverð. Í umræðunni um Evrópusambandið er fullveldi gjarnan sett upp eins og eitthvað sem annaðhvort er varðveitt eða afhent. Við höldum því hér heima - eða sendum það til Brussel. En kannski er sú mynd of einföld. Kannski er mikilvægari spurning hvort fullveldi felist eingöngu í því að geta sagt nei við ákvörðunum annarra - eða líka í því að hafa raunveruleg áhrif á þær ákvarðanir sem munu hvort sem er móta líf okkar. Kannski þurfum við því að hætta að tala um fullveldi eins og ættaróðal sem annaðhvort er varðveitt óskert eða jafnað við jörðu. Fullveldi er fyrst og fremst vald - verkfæri. Og vald snýst ekki aðeins um réttinn til að ákveða. Það snýst líka um getu til að hafa áhrif. Spurningin ætti því alltaf að vera: Hvernig getum við beitt fullveldinu á sem áhrifaríkastan hátt. Vil minna á í lokin að spurningin í atkvæðagreiðslan 29. ágúst er aðeins um hvort við gætum mögulega beitt okkar fullveldi enn betur en við gerum í dag. Höfundur er stjórnmálafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Martha Árnadóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 12.09.2026 Halldór Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo skrifar Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir skrifar Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar Skoðun Öldungaráð Reykjavíkurborgar tekið úr sambandi Viðar Eggertsson skrifar Skoðun Stöðugleiki á leigumarkaði Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar Skoðun 5,2% gjaldahækkanir – skýr skilaboðin inn á vinnumarkaðinn Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hvað gætum við gert fyrir 112 milljarða? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hamingjuóskir til allra sem sögðu nei Einar Helgason skrifar Sjá meira
Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar
Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar
Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar
Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar