Lægðardrag fikrar sig nær og bætir í úrkomu í nótt og á morgun Atli Ísleifsson skrifar 21. ágúst 2026 06:59 Gera má ráð fyrir rigningu í Reykjavíkurmaraþoni og á Menningarnótt. Veðurstofan Lægðardrag mun fikra sig nær vesturhluta landsins í dag með smá vætu til að byrja með og má því búast við suðvestan strekkingi norðvestantil. Það verður þó bjartviðri að mestu og hlýjast austantil með hita allt að 19 stigum.
Á vef Veðurstofunnar segir að með kvöldinu bæti í úrkomu, en í nótt og á morgun, laugardag, megi búast við rigningu eða súld á nær öllum vesturhelmingi landsins og heldur ákveðnari suðlægum áttum. „Einhverjar skúraleiðingar verða austanlands, en lengast af úrkomuminna. Hitatölur fara heldur lækkandi, en áfram verður hlýtt á Austfjörðum. Á laugardagskvöld verður farið að draga úr úrkomu, en þá má búast við allhvössum eða hvössum vind á hálendinu og til fjalla á Snæfellsnesi og Norðurlandi. Á sunnudag dregur úr vindi og úrkomu með hlýnandi veðri, en hitatölur gætu farið í allt að 20 stig norðaustanlands. Síðdegis má svo búast við rigningu austanlands. Útlit er fyrir því að þetta stef, væta með köflum í flestum landshlutum, verði endurtekið vel yfir miðja næstu viku,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Suðvestan 5-13 m/s og talsverð eða mikil rigning eða súld, einkum vestanlands, en úrkomuminna austanlands fram eftir degi. Hiti 11 til 17 stig, hlýjast á Austfjörðum. Á sunnudag: Suðvestlæg átt 8-13 m/s, en hægari sunnan heiða síðdegis. Víða skúrir, en styttir upp fyrir norðan. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast norðaustanlands. Á mánudag: Norðaustlæg átt 3-10 m/s, skýjað með köflum og úrkomulítið, en fer að rigna austanlands með kvöldinu. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast suðvestanlands. Á þriðjudag: Suðaustaustlæg eða breytileg átt, en norðaustan stekkingur norðvestanlands. Talsverð rigning, einkum suðaustanlands, en dregur víða úr vætu þegar líður á daginn. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast á Norðausturlandi. Á miðvikudag: Útlit fyrir fremur hæga austlæga eða breytilega átt, en norðaustan kalda norðvestantil. Skýjað með köflum og allvíða rigning eða skúrir. Hiti 9 til 16 stig, hlýjast á Suðurlandi. Á fimmtudag: Útlit fyrir norðaustlæga átt og rigningu, en úrkomuminna suðvestanlands. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Sjá meira