Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Magnús Jochum Pálsson skrifar 20. ágúst 2026 15:32 Swae Lee var ánægður með Harald og félaga hjá Coppermine. Rapparinn Swae Lee hélt tónleika í Austurbæjarbíói um helgina og skemmti sér svo á næturklúbbnum Auto. Farangur hans týndist hins vegar á leið til landsins og því góð ráð dýr. Eftir að hafa leitað sér að nærbuxum í götufatabúðinni Coppermine heillaðist hann af merkinu, verslaði stóran hluta af lagernum og var klæddur í merkið frá toppi til táar á tónleikunum.
Bandaríski tónlistarmaðurinn Swae Lee, sem er þekktastur sem annar helmingur tvíeykisins Rae Sremmurd og fyrir lögin „Unforgettable“ og „Sunflower“, hélt tónleika í Austurbæjarbíói laugardaginn 15. ágúst. Sjá einnig: Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Ferðin fór þó brösuglega af stað því farangur bæði Swae Lee og teymis hans skilaði sér ekki þegar hópurinn lenti á landinu. Þá voru góð ráð dýr og fóru skipuleggjendur tónleikanna hjá Garcia Events með tónlistarmanninn í verslunarleiðangur. „Hann var búinn að týna öllum farangrinum og svo var hringt í mig til að taka á móti honum og hann var ótrúlega næs,“ segir Haraldur Davíð Björnsson, stofnandi Coppermine, við blaðamann. „Þetta var algjörlega súrrealískt. Hann kom inn til að ná sér í nærföt og fór út með hálfa búðina, og svo stóð hann á sviðinu í fötunum okkar,“ segir Haraldur og bætir við að teymið hafi keypt fatnað fyrir meira en milljón króna. Swae Lee var síðan klæddur frá toppi til táar í Coppermine á sviðinu í Austurbæjarbíói og hrósaði merkinu sérstakleg á tónleikunum þar sem hann kallaði Coppermine uppáhalds fatamerkið. Þá sást hann í fötum merkisins á næturklúbbnum Auto á bæði föstudags- og laugardagskvöld. Myndbönd af Swae Lee á tónleikunum og Auto má sjá hér að neðan:
Tónlist Tíska og hönnun Tónleikar á Íslandi Mest lesið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Bíó og sjónvarp Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Sjá meira