Hótar þeim hörmungum sem eiga í viðskiptum við Íran Hólmfríður Gísladóttir skrifar 20. ágúst 2026 07:36 Kínverjar kaupir mikið magn olíu af Íran og erfitt að sjá fyrir sér hvernig Trump hyggst refsa þeim fyrir það. epa/Abedin Taherkenareh Donald Trump virðist hafa ákveðið að breyta um taktík til að neyða stjórnvöld í Íran að samningaborðinu. Til viðbótar við stöðugar árásir stendur nú til að einangra landið efnahagslega og hefur Bandaríkjaforseti hótað hverjum þeim sem eiga í viðskiptum við Íran alvarlegum afleiðingum.
Trump sagði á Truth Social að um væri að ræða umfangsmestu efnahagsaðgerðir sögunnar gegn nokkru landi. „Hvaða ríki sem heimilar fjármálastofnunum sínum, fyrirtækjum, flugvöllum eða opinberum stofnunum að veita Írönum nokkra aðstoð mun sjálft sæta gríðarlegum efnahagslegum afleiðingum,“ sagði forsetinn. Aðgerðirnar voru ekki útskýrðar frekar, né heldur greint frá því hvort og þá hvaða ríki hefðu mögulega gerst sek um að aðstoða Íran. Bandaríkjastjórn, sem hefur leitað allra leiða til að binda enda á átökin, hefur þegar gripið til efnahagslegra þvingana gegn Íran, til viðbótar við refsiaðgerðir gegn landinu sem hafa verið í gildi um langt skeið. Ráðamönnum í Íran hefur hins vegar tekist að aðlagast efnahagslegum þvingunaraðgerðum, sem hefur reynst þeim auðveldara en öðrum þar sem hagsmunir almennings eru ekki efst á forgangslistanum. Stríð Bandaríkjamanna og Ísraelsmanna gegn Íran hefur reynst fyrrnefndu dýrkeypt; það hefur kostað milljarða, gengið á vopnabirgðir og þá er það afar óvinsælt heima fyrir. Íranir hafa reynst erfiðari viðfangs en stjórnvöld vestanhafs áttu nokkurn tímann von á og uggur meðal Repúblikana um að stríðið eigi eftir að verða þeim dýrkeypt í kosningunum í nóvember. Trump virðist hins vegar ekki eiga neina útgönguleið eins og sakir standa, án þess að þurfa að játa ósigur. Litlar líkur eru á að Íranir muni samþykkja að falla frá kjarnorkuáætlun sinni, né láta af hendi birgðir sínar af auðguðu úrani. Hagfelldur samningur á borð við þann sem Barack Obama náði að knýja fram virðist handan seilingar eftir það sem á undan er gengið.
Bandaríkin Donald Trump Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Vučić játar ósigur Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Leikur á hnífsegg í Brasilíu Erlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira