„Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Bjarki Sigurðsson skrifar 17. ágúst 2026 14:25 Mikið stuð var á ballinu. Aðsend Sumarball fyrir menntaskólanema gekk eins í sögu segja skipuleggjendur. Sex hundruð ungmenni skemmtu sér undir berum himni án allra vímuefna.
Aron Valur Gunnlaugsson og Ketill Ágústsson hafa síðustu þrjú sumur haldið sumarball og brekkusöng við Hlégarð í Mosfellsbæ fyrir ungmenni á aldrinum sextán til átján ára, krakka sem eru á leið á sitt fyrsta, annað eða þriðja ár í framhaldsskóla. Veðurguðirnir voru með skipuleggjendum í liði í ár og gekk hátíðin gríðarlega vel. „Það var ógeðslega gaman að sjá hvað allir voru að hafa gaman, við vorum heppnir með veður, það var sól allan daginn. Það voru matarvagnar og fótboltavöllur. Þetta leit mjög vel út,“ segir Aron Valur. Aron Valur Gunnlaugsson skipulagði og skemmti.Aðsend Um sex hundruð ungmenni mættu á ballið. „Þegar við vorum sjálfir í menntaskóla, sem var nú bara í fyrra og hittífyrra, ákváðum við að prófa einhvern svona viðburð því það var enginn stemningsviðburður fyrir okkar aldur. Þetta virkaði mjög vel þannig við ákváðum að halda áfram með þetta. Við erum með öll leyfi og erum í góðu samtali við lögregluna og Mosfellsbæ. Það voru engin ofbeldisbrot sem var mjög ánægjulegt,“ segir Ketill. Ketill Ágústsson kann ekki bara að skipuleggja böll heldur líka á gítar.Aðsend Þeir segja íbúa hverfisins almennt ánægða með framtakið. „Það var enginn að pirra sig á þessu. Það voru allir bara rosa ánægðir með að það væri verið að gera eitthvað fyrir þessa krakka. Þetta væri nostalgíupartí,“ segir Aron Valur. „Það var ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta í partíið,“ segir Ketill. Bríet tók nokkur lög.Aðsend Hilmar Gunnarsson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, er ánægður með framtakið. „Mér heyrist að bæjarbúar séu ekki annað en ánægðir með að það sé eitthvað gert fyrir þennan aldurshóp sem stundum gleymist. Þetta eru krakkar sem komast kannski ekki inn á stóru fullorðinsböllin og eru of gamlir fyrir félagsmiðstöðvarnar. Það er virkilega mikil ánægja með þetta og vel skipulagður viðburður,“ segir Hilmar. Gellur í gír.Aðsend Felulitirnir eru í tísku.Aðsend Villi Karl mætti.Aðsend Þessi voru í góðum gír.Aðsend Bríet með gullfallegan Hlégarð í baksýn.Aðsend
Mosfellsbær Börn og uppeldi Tónleikar á Íslandi Framhaldsskólar Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið Sahara Ray látin Lífið Costanza á klakanum Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Richard Riehle látinn Lífið Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Sjá meira