Viðskipti innlent

Þor­valdur ráðinn fram­kvæmda­stjóri

Árni Sæberg skrifar
Þorvaldur Einarsson, framkvæmdastjóri Ofar.
Þorvaldur Einarsson, framkvæmdastjóri Ofar. Ofar

Þorvaldur Einarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Ofar, sem er hluti af Nova klúbbnum. Þorvaldur kemur til Ofar frá Lyfju, þar sem hann hefur verið tækni- og þróunarstjóri frá árinu 2022 og borið meðal annars ábyrgð á upplýsingatækni og þróun stafrænnar þjónustu.

Í fréttatilkynningu þess efnis segir að þar áður hafi Þorvaldur starfað sem viðskiptaþróunarstjóri hjá App Dynamic og gegt leiðtogahlutverkum hjá fyrirrennurum Ofar, Origo og Nýherja. Þorvaldur sé með meistaragráðu í rafmagnsverkfræði frá University of Maryland.

„Það er virkilega spennandi að fá tækifæri til að taka þátt í næsta kafla Ofar. Félagið hefur sterka stöðu á fyrirtækjamarkaði, mikla sérþekkingu og traust viðskiptasambönd sem hafa byggst upp á löngum tíma. Ég hlakka til að kynnast starfsfólki, viðskiptavinum og samstarfsaðilum Ofar og vinna með þeim að því að byggja áfram ofan á þennan sterka grunn. Ég sé meðal annars mikil tækifæri í að tengja enn betur saman búnað, þjónustu og stafrænar lausnir til að gera notendum einfaldara að nýta tæknina til að ná árangri,“ er haft eftir Þorvaldi.

Þá er haft eftir Sylvíu Kristínu Ólafsdóttur, forstjóra Nova klúbbsins, að Ofar sé sterkt félag fyrst og fremst vegna fólksins sem þar starfi, þekkingarinnar sem hafi byggst upp og traustsins sem starfsfólkið hafi skapað hjá viðskiptavinum og samstarfsaðilum. 

„Þorvaldur þekkir bæði markaðinn og rætur félagsins og kemur með dýrmæta reynslu af tækni, viðskiptaþróun og breytingum. Það er frábært að fá Þorvald til liðs við okkur því fram undan eru spennandi tækifæri til að byggja áfram á því sem félagið gerir vel í dag, þróa þjónustu og lausnir og nýta betur styrkinn sem felst í að vera hluti af Nova klúbbnum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×