Sport

Lyfti tvö hundruð kílóum tíu sinnum í röð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bjarni Leifs Kjartansson er svo sannarlega hraustur maður í frábæru formi.
Bjarni Leifs Kjartansson er svo sannarlega hraustur maður í frábæru formi. @bjarnileifsk

Sumir leita leiða til að slappa af úti í sveit en svo eru það aðrir sem setja þar á svið sýningu í hraustleika og styrk.

Bjarni Leifs Kjartansson er ríkjandi Íslandsmeistari í CrossFit og nýkominn heim af heimsleikunum í CrossFit þar sem hann hjálpaði liði CrossFit Reykjavíkur að ná fjórtánda sætinu í liðakeppninni.

Bjarni Leifs var líka með í undankeppninni og varð í 66. sæti í Evrópu og 278. sæti í heiminum í fjórðungsúrslitunum.

Bjarni varð Íslandsmeistari 2023 og 2025 en hann er bara 22 ára gamall og ætti að eiga öll sín bestu ár eftir.

Hann er í frábæru formi og sannaði það heldur betur í myndbandi sem Bjarni setti inn á samfélagsmiðla sína.

Þar sést hann lyfta tvö hundruð kílóum tíu sinnum í röð með hnébeygju.

Það er þegar orðið að sýningu í styrk að lyfta tvö hundruð kílóum einu sinni, hvað þá að gera það tíu sinnum í röð á stuttum tíma.

Hér fyrir neðan má sjá þennan hrausta CrossFit-mann sýna styrk sinn og þol.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×