Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 14. ágúst 2026 20:00 Lestin hélst upprétt en sveiflaðist ógurlega til og frá og hafnaði að lokum af teinunum. Getty Miklar tafir urðu á lestarsamgöngum í Essex á Englandi eftir að lest fór út af sporinu í dag, önnur á jafnmörgum dögum. Um borð voru tæplega 45 farþegar en enginn þeirra slasaðist og lestin hélst upprétt í hamaganginum.
Lestin var á vegum lestarsamgangna Stór-Anglíu og var á leið frá Southend Victoria til Liverpool-götu í Lundúnum þegar hún fór út af sporinu upp úr tvö að staðartíma. Öllum ferðum á svæðinu var í kjölfarið aflýst. Þessi lest fór út af sporinu innan við sólarhring eftir að önnur lest fór út af sporinu í Austur-Sussex þar sem tveir farþegar slösuðust alvarlega. Ógurlegar sveiflur Jon Young, farþegi um borð, lýsir atvikinu sem skelfilegri lífsreynslu. „Lestin sveiflaðist ógurlega í um tíu sekúndur, eins og hún ætlaði að velta. Svo hélt hún áfram í nokkrar mínútur í viðbót en það heyrðist hræðilegt titrandi hljóð,“ segir hann í samtali við breska ríkisútvarpið. Young segir að reyk hafi lagt inn í aftasta vagninn og að fólk hafi hlaupið um í ofboði. Ringulreið myndaðist einnig á Southend-flugvelli, sem er á sömu lestarleið. Fréttamaður BBC á svæðinu, sem sjálfur var nýlentur úr fríi, sagði fjölda farþega ekki komast áfram frá lestarstöðinni. Sjúkraþyrla lenti í varúðarskyni skammt frá slysstaðnum, auk þess sem lögregla, slökkvilið og sjúkraflutningamenn voru kölluð út. Rannsóknarnefnd járnbrautarslysa sendi jafnframt rannsóknarteymi á staðinn til að afla gagna. Kanna þátt hitans Samkvæmt BBC fannst vel fyrir titringi í nágrenninu og bæjarbúum brá í brún við hávaðann. Íbúar á svæðinu komu margir á vettvang slyssins og færðu viðbragðsaðilum vatnsflöskur og ísa þar sem þeir voru að störfum í miklum hita. Martin Frobisher hjá Network Rail segir sumarhitann hafa reynt verulega á lestarkerfið. Mark Francois, þingmaður Íhaldsflokksins fyrir Rayleigh og Wickford, segir að rannsóknin muni sérstaklega kanna hvort veðrið hafi átt þátt í slysinu. Samgönguráðuneytið breska ítrekaði í viðbrögðum sínum við atvikinu að lestarkerfi Bretlands væri með þeim öruggustu í heimi og að lestarslys sem þessi væru afar sjaldgæf.
Bretland England Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Fleiri fréttir Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Sjá meira