„Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Smári Jökull Jónsson skrifar 14. ágúst 2026 20:53 Magnús Þór Jónsson er formaður Kennarasambands Íslands. Vísir/Lýður Valberg Formaður Kennarasambandsins segir að kennarar hefðu viljað samráð frekar en samtal um ákvörðun er varðar breytt námsmat í grunnskólum landsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur mikill hiti verið á fundum kennara, skólastjórnenda og fulltrúa ráðuneytisins síðustu daga.
Þann 7. ágúst tilkynnti menntamálaráðherra um breytingar á námsmati í grunnskóla. Einkunnir verða birtar í tölum í stað bókstafa og verða breytingarnar innleiddar í tveimur áföngum, í 10. bekk næsta vor og 4. og 7. bekk vorið 2028. Einkunnaskalinn sem notast verður við nær frá einum og upp í tíu en verður þó ekki eins uppbyggður og talnaskalinn sem áður var notaður og flestir þekkja. Einkunnin 4 vísar í einstaklingsnámskrá og 7 gildir inn á 2. hæfniþrep í íslensku, stærðfræði og ensku eins og kveður á um í námskrá. Kennarar geta notað allan skalann í sínu mati, nema á vitnisburði og lokamati.Vísir/Sara Tölurnar 1-3 verða ekki notaðar í vitnisburði og talan 4 aðeins notuð fyrir nemendur með einstaklingsnámskrá. Í raun eru það því aðeins tölurnar 5-10 sem notast verður við þegar skila á námsmati við lok 10. bekkjar. Hiti á fundum sem báru árangur að lokum Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir tímann til að vinna hlutina knappan en kennarar mæta flestir til vinnu í næstu viku. Nauðsynlegt sé að nemendur og kennarar viti hvernig námsmati verði háttað sem fyrst. „Það er engin löngun á því að kennarar hafa komið því á framfæri að samráðið byrji á öfugum enda þegar búið er að tilkynna ákvörðunina fyrirfram. Við hefðum viljað fá samráð frekar en samtal.“ Undanfarna daga hafa fulltrúar menntamálaráðuneytisins fundað með kennurum, skólastjórnendum og fulltrúm sveitarfélaga.. Magnús segir að fundirnir hafi að lokum leitt aðila í rétta átt en samkvæmt heimildum fréttastofu hefur fólki verið heitt í hamsi á fundunum. Er búinn að vera hiti á þessum fundum? „Kennarar og skólafólk eru ástríðufólk og við leggjum mikinn metnað í vinnuna okkar. Eins og ég sagði áðan, við hefðum viljað hafa fyrirvarann lengri og klárlega samráðið meira en héðan í frá þá er bara málið að bretta upp ermar og vinna verkið.“ Mikilvægt að stuðningur ráðuneytisins verði góður Í hverjum skóla verður búið til teymi sem að búa til áætlun um hvernig nýtt kerfi verður innleitt. Skólarnir eiga að vera búnir að skipa í þessu teymi um miðja næstu viku og hefjast fundir kennara og skólastjórnenda með fulltrúum ráðuneytisins og MMS strax í lok mánaðarins. Magnús segir skólafólk hafa sýnt að það sé kraftaverkafólk. „Við höfum verið mjög skýr hjá Kennarasambandinu að til þess að þetta verkefni sé farsælt þá verðum við að treysta á það að sá stuðningur sem ráðuneytið hefur kynnt og starfsfólk Miðstöðvar mennta- og skólaþjónustu verður þar í lykilhlutverki, að hann verði til skólanna. Og enn frekar að það verði samráð við grunn- og framhaldsskólana og ekki síst að sveitarfélögin séu tilbúin að styðja við þessa innleiðingu með ráðum og dáð.“ „Þegar við vorum að færa úr tölustöfum í bókstafi þá voru ákveðin mistök gerð og ekki síst einmitt hvað varðar skort á samráði á milli skólastiga.“ Hluti af innleiðingaferlinu í hverjum skóla er að meta vægi undirflokka mismunandi námsgreina svo nemendur og kennarar átti sig á hvað liggi á bakvið einkunnirnar. „Við verðum að treysta á það að þetta hæfileikafólk í ráðuneytinu og vissulega hæfileikafólk úti hjá sveitarfélögunum og hvað þá hæfileikafólkið í skólunum fái núna allan þann stuðning og allt það næði sem þarf til þess að þetta verkefni verði leyst á farsælan hátt núna í vor.“
Grunnskólar Framhaldsskólar Börn og uppeldi Skóla- og menntamál Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira