Willum mættur fyrstur upp á spítala alla daga Aron Guðmundsson skrifar 9. ágúst 2026 12:52 Eygló hefur fengið mikinn stuðning frá Afreksmiðstöð Íslands frá því að hún lenti inn á sjúkrahúsi eftir að hafa meiðst á æfingu Vísir/Samsett Eygló Fanndal Sturludóttir, íþróttamaður ársins 2025, er gífurlega þakklát fyrir þann stuðning sem hún hefur fengið frá Afreksmiðstöð Íslands á erfiðum kafla á hennar ferli en meiðsli hafa haldið henni frá keppni í rúmt ár.
Í ítarlegu viðtali við Sýn á dögunum sagði Eygló frá þeim áskorunum sem hún hefur mætt frá því að hún varð Evrópumeistari í fyrra og kjörin íþróttamaður ársins. Ítrekuð meiðsli hafa reynt á hana en í þeirri stöðu hefur svo til nýstofnuð Afreksmiðstöð Íslands heldur betur sannað gildi sitt fyrir hana. Þá hefur forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Willum Þór Þórsson, látið sig stöðu Eyglóar varða. „Willum var með mér alla daga upp á spítala, mætti þegar að ég meiddi mig og var fyrstur alla morgna kominn að kíkja á mig. Ég fékk svo ótrúlega mikinn stuðning frá fólkinu upp í Afreksmiðstöðinni. Þau voru alltaf að hringja, tékka á mér og hjálpuðu mér. Eins eftir á er ég með mitt teymi hjá Afreksmiðstöðinni sem hittist reglulega, tekur stöðuna, kannar hvernig ég hafi það. Þau gripu mig algjörlega.“ „Maður þarf bara að leyfa spítalanum að gera það sem að þau gera best á meðan að ég er þar inni en hvað tekur svo við þegar að ég er komin út. Allt sem tekur við. Beint í að fá sálfræðiaðstoð, hugsa um allt sem var mögulega hægt að gera fyrir mig. Svo eru mánaðarlegir fundir þar sem að við tökum stöðuna, hvort við getum bætt eitthvað. Þetta var bara frábært. Klippa: Eygló þakklát fyrir stuðninginn Þetta er bara eins og atvinnumannaumhverfi á að vera. „Mér finnst þetta bara vera lágmark. Íþróttin mín, ferillinn minn. Þetta er lífið mitt. Allt sem ég hef byggt upp síðustu ár. Maður missir það bara einhvern veginn á augabragði. Það er erfitt að útskýra það að ég fari svona langt niður af því að ég fæ ekki að lyfta lóðum. En fyrir mér er þetta bara allt sem ég vil gera, atvinnan mín og það sem mér finnst skemmtilegast. Maður þarf svo ótrúlega mikla aðstoð þegar maður lendir í svona. Það hjálpaði svo mikið að hafa alla í AMÍ og auðvitað fjölskyldu og vini.“ Brot úr viðtalinu við Eygló má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Lyftingar ÍSÍ Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti ÍBV samdi við bandarískan hermann Handbolti „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Sport Sjáðu markaveislur United og Bayern München Fótbolti Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Fótbolti United aldrei í vandræðum Fótbolti Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Körfubolti Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Besta frjálsíþróttafólk heims mætist í nýju móti Yfir hundrað þúsund áhorfendur mættu á NFL-leik í Ástralíu ÍBV samdi við bandarískan hermann Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Dagskráin í dag: Golf, Formúla og Hollywood Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Þórsarar komnir á blað Sextán íslensk mörk í Meistaradeildinni Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Dagbjartur í góðum málum á úrtökumóti DP World Tour Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Yamal gæti farið út af sporinu og ÍBV frumsýnir Kana Sjá meira