Raunveruleiki sem þú getur ekki forðast Aron Guðmundsson skrifar 7. ágúst 2026 08:00 Viktor Gísli Hallgrímsson verður á mála hjá Barcelona til ársins 2029 hið minnsta. VÍSIR/VILHELM Íslenski landsliðsmarkvörðurinn í handbolta, Viktor Gísli Hallgrímsson hefur framlengt samning sinn við spænska stórveldið Barcelona til ársins 2029. Þar hefur hann barist við besta markvörð í heimi um mínútur og óttast ekki samkeppnina.
Tíðindin koma eftir afar gott tímabil hjá Barcelona sem vann fjórfalt, þar á meðal deildina heima fyrir og svo þann stóra, Evrópumeistaratitilinn eftir sigur í Meistaradeildinni. Alls töpuðu Börsungar aðeins einum leik á umræddu tímabili og þó áhugi hafi komið annars staðar frá heillaði það Viktor Gísla mest að halda kyrru fyrir. „Þetta er í fyrsta skiptið sem ég framlengi samning minn við félag,“ segir Viktor Gísli í samtali við íþróttadeild Sýnar. „Það var markmiðið að vera aðeins lengur á sama stað heldur en ég hef verið að gera undanfarið. Kærastan mín er sátt, ég er sáttur, við unnum Meistaradeildina. Þetta var bara borðleggjandi að mínu mati.“ Mjög fókuseraður Í herbúðum Börsunga hefur Viktor Gísli þurft að berjast fyrir mínútum innan vallar gegn besta markverði í heimi, Emil Nielsen sem er nú farinn til Vezprém í Ungverjalandi. Viktor mun fá harða samkeppni frá Sergey Hernandez, landsliðsmarkverði Spánar á komandi tímabili og ætlar að gera sig enn meira gildandi. „Það eru ekki margir sem fá að vera í þessari hringiðu og ég er bara mjög sáttur með að vera þar. Það er alltaf samkeppni í öllum þessum bestu liðum. Það er bara raunveruleikinn í þessum heimi. Maður getur ekki verið að forðast það og ætlast til að ná góðum árangri. Ég er mjög fókuseraður á mína hluti, reyni að stjórna því sem ég get stjórnað. Hef trú á því að það muni skila mér góðum árangri eins og hefur gerst frá því að ég byrjaði að spila handbolta. Það breytist í rauninni ekkert. Við erum auðvitað að keppa við hvorn annan en maður óskar hinum ekkert ills þannig séð. Maður er bara að reyna vera betri hann á hverjum degi. Svo er þetta liðsíþrótt. Maður vill að liðinu gangi vel og tekur því sem kemur.“ Íslenskum Börsungum fjölgar Viktor nýtur þess að vera í umhverfi þar sem krafan er að vinna allt sem í boði er að vinna. Hann er ekki lengur eini íslenski leikmaður Barcelona því þangað er liðsfélagi hans úr landsliðinu, Janus Daði Smárason einnig mættur. „Það er heiður að vera partur af þessu í þessi nokkur ár sem maður er atvinnumaður. Ég er mjög spenntur. Janus Daði er náttúrulega að koma. Að vera með Íslendingi í liði er eiginlega ómetanlegt. Það að vera með öðrum Íslendingi í Barcelona er örugglega enn þá betra. Hann er hér til 2029 líka vera saman í þessu, með smá festu. Það hjálpar til að vera með liðsfélaga af Norðurlöndunum en að vera með Íslendingi er allt annað. Að geta talað sitt tungumál á hverjum degi, að þurfa ekki að tala annað tungumál þar sem að þú getur ekki alveg verið þú sjálfur því þú kannt ekki alveg öll orðin sem þú vilt segja.“ „Ævinlega þakklátur henni“ Þá hjálpar einnig að vera með maka sem styður mann í þeim óútreiknanlega heimi sem atvinnumennskan getur verið. Jenný, kærasta Viktors Gísla, styður sinn mann og hefur gert til lengri tíma. „Ég man þegar að ég bar þetta undir hana fyrst. Þegar að við bjuggum á Íslandi og ég var á leið til GOG í Danmörku. Við vorum búin að vera saman í nokkra mánuði og ég lét hana vita að ég væri líklegast á leiðinni út eftir ár þá tók hún bara mjög vel í það um leið. Hún borgaði meira að segja fyrir öll húsgögnin okkar þegar að við héldum til Danmerkur því hún var sú eina sem að átti pening. Ég var bara á einhverjum tuttugu þúsund kalli á mánuði í Fram. Hún græjaði það. Ég er ævinlega þakklátur fyrir hana að nenna að vera í þessu með mér. Þetta er ógeðslega gaman en það koma erfiðir tímar. Sérstaklega þegar að maður er að flytja mikið, skipta um lönd, tungumál. Það sem hún gerir mjög vel er að finna sér vini hvar sem er. Hún er mjög góð í þessum félagslegu aðstæðum og bætir upp fyrir það hjá mér.“
Spænski handboltinn Landslið karla í handbolta Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira