Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Árni Sæberg skrifar 6. ágúst 2026 11:12 Fimm Kólumbíumenn voru teknir í tollinum á tveimur dögum nýverið. Talið er að mál þeirra tengist. Vísir/Vilhelm Þrír Kólumbíumenn, sem sætt hafa gæsluvarðhaldi frá 29. júlí, voru gripnir með 2,4 kíló af kókaíni í farangri sínum. Daginn eftir voru tveir Kólumbíumenn til viðbótar teknir með 1,7 kíló af sama fíkniefni á Keflavíkurflugvelli.
Talsvert hefur verið fjallað um mál Kólumbíumannanna þriggja síðustu daga en fjölskyldur þeirra sögðust ekkert hafa heyrt í þeim í lengri tíma og síðar kom í ljós að þeir sættu gæsluvarðhaldi vegna gruns um fíkniefnabrot. Lögreglan á Suðurnesjum hefur haldið spilunum þétt að sér vegna málsins en nú hefur hún gefið frá sér fréttatilkynningu vegna þess. Gæsluvarðhald framlengt Þar segir að málavextir séu með þeim hætti að tollgæslan á Keflavíkurflugvelli stöðvaði þrjá við komuna til landsins aðfararnótt 29. júlí síðastliðinn. Við leit í farangri þeirra hafi fundist pakkningar sem innihéldu 2,4 kíló af kókaíni. Hin grunuðu, sem séu kólumbískir ríkisborgarar, hafi komið frá Spáni og verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til miðvikudagsins 5. ágúst síðastliðins. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hafi farið fram með kröfur um framlengingu gæsluvarðhalds og Héraðsdómur Reykjaness úrskurðað hin grunuðu í gæsluvarðhald til miðvikudagsins 12. ágúst næstkomandi. Tveir til Daginn eftir, fimmtudaginn 30. júlí síðastliðinn hafi tollgæslan á Keflavíkurflugvelli stöðvað tvo, sem einnig hafi komið frá Spáni. Við leit í farangri þeirra hafi fundist pakkningar sem innihéldu 1,7 kíló af kókaíni. Pakkningarnar hafi reynst vera sams konar þeim sem lagt var hald á deginum áður í fórum þremenninganna. Hin grunuðu, sem einnig séu kólumbískir ríkisborgarar, hafi verið úrskurðuð í gæsluvarðhald til dagsins í dag 6. ágúst og lögreglustjórinn á Suðurnesjum muni leggja fram kröfu um áframhaldandi gæsluvarðhald. Rannsóknardeild lögreglustjórans á Suðurnesjum fari með rannsókn málsins, sem sé á frumstigi, og meðal annars sé unnið að því að upplýsa um tengsl málanna. Ekki verði veittar frekari upplýsingar á þessu stigi málsins.
Fíkniefnabrot Kólumbía Keflavíkurflugvöllur Smygl Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira