Littler segist vera betri íþróttamaður en Yamal Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. ágúst 2026 07:01 Luke Littler og Lamine Yamal eru báðir fæddir á árinu 2007 en hvor er betri íþróttamaður? Það fer auðvitað mikið eftir skilgreiningunni. EPA/ANDY RAIN/WILL OLIVER Það efast enginn um að Luke Littler er langbesti pílukastari heims í dag en er hann besti íþróttamaður heims á sínum aldri. Hann sjálfur hikar ekki við að lýsa því yfir.
Luke Littler hefur unnið hvert mótið á fætur öðru í pílukastinu á þessu ári og á góðan möguleika á að vinna öll stærstu mótin á einu almanaksári. Hann er með sjálfstraustið í botni og það má sjá á nýju viðtali við hann. Þar má einnig sjá að umræðan og athyglin sem Lamine Yamal fær virðist pirra hann aðeins. Hvort það hafi verið rétt hjá honum að skjóta á spænska táninginn er allt önnur saga en orð hans hafa alla vegna vakið mikla athygli. „Ég meina, hann gerði nú ekki mikið á þessu heimsmeistaramóti. Hann skoraði kannski eitt mark og lagði upp tvö. Er hann besti nítján ára íþróttamaðurinn í heimi? Nei, hann er það ekki,“ sagði Luke Littler í viðtalinu. „Sú staðreynd að ég er að vinna mína leiki og hvernig ég er að safna titlum og bikurum gerir það líklegt að ég sé sá besti,“ sagði Littler. Lamine Yamal er fæddur 13. júlí 2007 en Luke Littler er fæddur 21. janúar 2007. Littler á möguleika á því að vinna sinn þriðja heimsmeistaratitil sem táningur en Yamal náði að vinna bæði EM og HM sem táningur. Framlag Yamal á Evrópumótinu 2024 var þó vissulega mun meira en á heimsmeistaramótinu síðasta sumar en hann var ekki búinn að ná sínu besta leikformi eftir að hafa endað tímabilið með Barcelona meiddur. View this post on Instagram A post shared by Daily Mail Sport (@dailymailsport)
Pílukast Spænski boltinn Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Serbía - Ísland | Mæta Jokic í gini úlfsins Körfubolti Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti Man. City verður meistari Sport „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Körfubolti Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Enski boltinn Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Handbolti „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ Körfubolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Fleiri fréttir Jón Dagur skoraði sitt fyrsta deildarmark fyrir Berlínarbúa Crystal Palace - Manchester City | Erfiður leikur fyrir ernina Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Mun sýna leiki þýsku úrvalsdeildarinnar á YouTube-rás sinni Rafael Leão til Galatasaray Dregið í Sambandsdeild: Íslendingar mætast og spila við nýliðana frá Andorra Dregið í Evrópudeild: Orri mætir Palace, Bournemouth og Juventus Styðja við börn með krabbamein: Arnór í búningi Rice á fyrsta Treyjudeginum Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Elías og félagar flugu áfram Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Goretzka mættur til Villa UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Zirkzee til Fiorentina: Samkeppnin eykst enn frekar hjá Alberti Felur samkynhneigðina og fer til félags í Sádi-Arabíu Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt Sjá meira