Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 8. ágúst 2026 07:04 Erlingur Sigvaldason sem giftist ástinni sinni David Evan Brooks við óhefðbundna og hátíðlega athöfn í Michigan síðustu helgi. Þeir giftu sig fyrst við litla athöfn á Íslandi í fyrra en ástin kviknaði upphaflega á skemmtistaðnum Kiki 2022. Anna Hulda Sigurðardóttir „Það var vissulega ákveðin áhætta fyrir að fara út í þetta ævintýri með manni sem ég hafði einungis hitt þrisvar í persónu. En maður tapar bara þeim skotum sem maður tekur ekki og í versta falli hefði bara myndast vinskapur út úr þessu,“ segir Erlingur Sigvaldason, sem giftist ástinni sinni David Evan Brooks við óhefðbundna og hátíðlega athöfn í Michigan, Bandaríkunum um síðustu helgi.
Strákarnir klæddust báðir bláum jakkafötum úr sitt hvorum litatóninum en allar konurnar fengu fyrirmæli um að mæta í hvítu, sem kom ansi skemmtilega út. Erlingur vinnur sem starfsnámsnemi í Seljaskóla en David er stærðfræðingur og barþjónn á Sjávargrillinu. Örlögin gripu heldur betur í taumana þegar David skellti sér í skólaferð til Íslands og þeir vissu fljótt að þarna höfðu þeir fundið stóru ástina í sínu lífi. Blaðamaður ræddi við þá um stóra daginn, fyrstu kynni og ástina. Strákarnir með dragdrottningunni sem spilaði veigamikið hlutverk í athöfninni.Rhea Jill Hvað eruð þið búnir að vera saman lengi? Við erum búnir að vera saman í fjögur ár. Við kynntumst þegar David var ferðamaður á Íslandi og hann var í skólaferð á vegum Western Michigan University. Við kynntumst örlagaríka nótt á Kiki 6. maí 2022, tveimur dögum fyrir afmælið mitt, Erlings. Þrátt fyrir lítinn tíma og takmörkuð tækifæri til þess að hittast restina af ferð Davids þá gripum við hverja gæs og áttum þrjú kvöld saman, tengingin var mjög sterk. David bauð mér, Erlingi, að koma til Michigan í Ágúst og tók ég tilboðinu. Erlingur og David á Íslandi stuttu eftir að þeir kynntust.Aðsend Við enduðu á því að fara í road-trip í kringum Lake Michigan, þar sem við urðu ástfangnir, en bílferðin tekur um 26 tíma og var það yfir marga daga. Það var vissulega ákveðin áhætta fyrir að fara út í þetta ævintýri með manni sem ég hafði einungis hitt þrisvar í persónu. En maður tapar bara þeim skotum sem maður tekur ekki og í versta falli hefði bara myndast vinskapur út úr þessu. Í þessari ferð, í Green Bay Wisconsin, kynnumst við dragdrottningunni sem kom fram í brúðkaupsveislunni. Við urðum dolfallnir fyrir henni og tölum við hana eftir showið, en þá kemur í ljós að þetta var í annað skiptið sem hún kom fram. Strákarnir á ferðalaginu um Lake Michigan.Aðsend Fjórum árum síðar hefur hún vaxið mikið á sviði drags í Wisconsinfylki, við héldum bandi á Facebook og fannst frábært að fá hana til þess að koma fram í brúðkaupsveislunni. Hún er stór hluti af okkar upphafi og okkar sögu. Við byrjum saman eftir ferðina og hefst ár af fjarsambandi, mörgum flugferðum og óvissu. David flytur til Íslands í nóvember 2023 á atvinnuleyfi, sem var heljarinnar vinna, en við vildum búa saman áður en við tækjum ákvörðun um að gifta okkur. Svo giftum við okkur, bæði fyrir ástina og stöðugleikann, 10. júlí 2025. David stefnir á ríkisborgararétt og líf á Íslandi næstu árin. David, til hægri, flutti til Íslands árið 2023.Anna Hulda Sigurðardóttir Hvenær og hvernig trúlofuðust þið? Við vorum í raun ekki með neina trúlofun heldur áttum við hjartnæmt samtal um framtíð okkar. Við giftum okkur hjá Sýslumanni 10. júlí í garði foreldra minna, það var mjög hógvær stund. 1. ágúst var langþráður fögnuður þar sem báðar fjölskyldur sameinast. Frá vinstri, Greg Brooks, pabbi Davids, David, Heiðdís Sigurðardóttir, móðir Erlings, Erlingur Sigvaldason og Derek Brooks, móðir Davids.Rhea Jill Hvað voruð þið búnir að vera lengi að skipuleggja þetta? Við höfum undirbúið stóra daginn í tæpt ár. Undirbúningurinn var að mestu leyti í höndum móður Davids og var það unnið þvert á landamæri í ótal myndsímtölum á milli Michigan og Íslands. Erlingur og David í Pictured Rocks, á leið sinni í kringum Lake Michigan í ágúst 2022. Þeir voru í ár að skipuleggja brúðkaupið og fengu mikla aðstoð frá móður Davids.Aðsend Hvar hélduð þið giftingu? Í ráðhúsi Novi-borgar í Michigan. Athöfnin fór fram í ráðhúsi Novi.Rhea Jill Hvernig var stóri dagurinn? Giftingardagurinn var frábær, við undirbjuggum athöfnina en hún var óvenjuleg. Við þurftum að undirbúa athöfn með dragdrottningu sem var hluti af showinu. Dragdrottningin tók stóran þátt í athöfninni.Rhea Jill Voruð þið sammála í skipulaginu? Við vorum sammála um helstu atriði, en David vildi sérstaklega fá dragdrottningu í athöfnina og náði hann að sannfæra mig um að það yrði ógleymanlegt, sem það reyndist einmitt verða. Dragdrottningin tók meðal annars lagið Where the hell is my husband? með tónlistarkonunni Raye. Rhea Jill Hvað fannst ykkur mikilvægast? Að sameina fjölskyldur okkar sem munu ekki fá mörg tækifæri til að hittast þegar haf aðskilur þær. Foreldrum Davids þótti dýrmætt að fá að kynnast Íslendingunum og fá góða innsýn í það góða fólk sem David er umvafinn. Erlingur og David giftu sig upphaflega á Íslandi og biðu spenntir eftir því að geta sameinað allt sitt fólk með stórri veislu úti.Anna Hulda Sigurðardóttir Hvernig gekk að velja fötin og hvaðan sóttuð þið innblásturinn fyrir það? Við völdum jakkaföt hjá jakkafataleigu og var ákveðið að ég yrði í dökkbláum jakkafötum þar sem ég er ljósari yfirlitum og David í ljósbláum jakkafötum þar sem hann er með dekkra hár. Strákarnir glæsilegir. Rhea Jill Fengu gestir einhverjar leiðbeiningar fyrir klæðaburð? Þar sem engin brúður var í þessu brúðkaupi þá fengu konur þau fyrirmæli að mæta í hvítu, sem er yfirleitt harðbannað í hefðbundnum brúðkaupum. Allar konur klæddust hvítu!Rhea Jill Hvaðan sóttuð þið innblástur? Við tókum innblástur frá okkar persónuleikum. Við erum hvorugir þeir alvörugefnustu og vildum ná að fanga það í veislunni og fögnuðinum. Við vorum ekki að ofhugsa smáatriði, þar sem að við vissum værum umkringdir stórkostlegu fólki og samveran var það sem myndi alltaf standa upp úr. Æskuvinir Erlings, þeir Vilhjálmur Jón Elfarsson og Hrannar Helgi Auðunsson, prentuðu út boli í tilefni dagsins.Aðsend Hvað stendur upp úr? Það var mjög áberandi hvað Íslendingar og Michiganbúar ná vel saman og ná persónuleikar og húmor vel saman. Það var sérstaklega úthugsað hvernig hægt yrði að blanda hópunum saman. Við vorum með „Meet and greet“ á föstudeginum þar sem að bingó fólksins var spilað, bingó þar sem fólk þarf að tala saman. Í veislunni sjálfri á laugardeginum var spurningakeppni Davids og Erlings sem dragdrottningin hélt og þar var skilyrði að einn Íslendingur sé í hverju liði þar sem að spurningarnar reiddu sig á þekkingu beggja landa. Besta ráðið sem við fengum svo frá brúðkaupsgesti var það að í rifrildi þá hefur eiginmaðurinn alltaf rétt fyrir sér. Íslendingar í Meet and Greet - veislunni Frá vinstri, Ingvar Þóroddsson, Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir, Vilhjálmur Jón Elfarsson, Hrannar Helgi Auðunsson og Haukur Árnason.Aðsend Sáu einhverjir um veislustjórn og voru skemmtiatriði? Ellah Maeaux, dragdrottningin sem við kynntumst í Wisconsinfylki fyrir fjórum árum, kemur inn og truflar athöfnina þegar vinkona Davids sem gaf okkur saman spyr hvort að það séu einhver mótmæli. Hún kom fram við mashup af okkar uppáhalds Taylor Swift-lögunum, Speak Now, sem var viðeigandi á þessum tímapunkti í athöfninni, og Paper Rings. Síðar sá hún um spurningakeppni og kom aftur fram við lagið Where the hell is my husband með Raye. Dragdrottningin sló algjörlega í gegn.Rhea Jill Var eitthvað sem kom ykkur á óvart? Það sem kom á óvart var það hversu móttækilegir þeir gestir voru sem voru íhaldssamir og ekki vanir að umgangast dragdrottningar og hommakúltúr. Það sýnir hreinlega að í gegnum raunverulega væntumþykju þá verður þú móttækilegur fyrir öllu. Pabbi Davids, sem er 65 ára, hafði aldrei séð eða hitt dragdrottningu áður. Hann vissi að þetta var það sem sonur hans vildi og studdi hann að sjálfsögðu í því. Þrátt fyrir aldur og takmarkaða þekkingu þá voru hann og fleiri gestir mjög kurteisir við dragdrottninguna og okkur brúðgumana og skemmtu sér konunglega. Stuð í bílnum með pabba Davids!Aðsend Hvað voru margir gestir? Sextíu Bandaríkjamenn og tuttugu Íslendingar. Ertu með eitthvað gullið ráð fyrir verðandi hjón sem eru að skipuleggja brúðkaup? Alls ekki ofhugsa smáatriði, ef þú ert umvafinn frábæru fólki sem elskar þig þá eru samveran og veisluhöldin alltaf að fara að vera frábær. David og Erlingur í Green Bay Wisconsin þar sem þeir kynntust dragdrottningunni árið 2022. Fjórum árum síðar voru þau öll saman í giftingunni. Gleðin var í fyrirrúmi á stóra deginum og þeir segja mikilvægt að sleppa tökum á smáatriðunum. Hvernig er tilfinningin að lenda eftir svona veislu? Við fengum að lenda hægt og rólega þar sem Íslendingar fóru ekki allir beint heim, stór hluti fór heim á mánudeginum en nokkrir voru áfram og fóru heim á þriðjudegi. Þá gafst færi á að halda stórkostlega en minni Íslendingasamkomu og kveðja alla hægt og rólega. Við erum ótrúlega þakklátir og meyrir yfir því hvað við eigum mikið af góðu fólki, sérstaklega fólk sem er tilbúið að mæta í áfangastaðabrúðkaup til Novi, Michigan af öllum stöðum.
Ástin og lífið Brúðkaup Íslendingar erlendis Bandaríkin Hinsegin Mest lesið Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Lífið Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ Lífið Euphoria-stjörnur á Íslandi Lífið Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Lífið Sækir um sem kærasti með nýju húðflúri Bíó og sjónvarp Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu Lífið Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Lífið Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Lífið Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Lífið Fleiri fréttir Brekkusöngur á jafnsléttu hápunkturinn Euphoria-stjörnur á Íslandi Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Hringar bendi til þess að Hadid og Cooper hafi gift sig Inga Sæland orðin eldri borgari: „Mér finnst ég alltaf vera bara tvítug“ Mikkel Hansen og Guðlaugur Victor í stuði hjá 66°Norður „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ „Hún er í hljóðverinu núna“ Hvað veistu um… One Direction? Dorrit um tíðindin: „💦💦💦💦💦💦“ Sankað að sér milljónum fylgjenda á tíu ára ferli Hvað er í gangi á Svalbarða? Hefur „ekki hugmynd um hvað er í gangi“ en kemur Grande samt til varnar Good Morning America í beinni frá Bláa lóninu á almyrkva Perez Hilton fluttur á spítala eftir sjálfsskaða í beinu streymi Sonur Mari og Njarðar fæddur Líkamlega lemstruð og fötin í rúst en vel þess virði Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit „Ég vil vera bestur í öllu“ Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Opnar sig um þunglyndi og depurð Gummi Google selur glæsihús á Grímshaga Sjá meira