Sport

Williams-systurnar gera aðra til­raun að endur­komu

Andri Broddason skrifar
Venus og Serena Williams ætla að spila saman í Cincinnati.
Venus og Serena Williams ætla að spila saman í Cincinnati. Harry How/Getty Images

Goðsagnakenndu tennissysturnar, Serena og Venus Williams, snúa aftur og spila saman tvíliðaleik á Opna Cincinnati-mótinu. Þær boðuðu endurkomu á Wimbledon-risamótinu en Serena Williams meiddist eftir einliðaleikinn og gat ekki keppt í tvíliðaleik.

Opna Cincinnati-mótið í tennis verður haldið dagana 11.-23. ágúst í Ohio í Bandaríkjunum og munu systurnar spila þar saman í fyrsta skipti síðan á Opna bandaríska risamótinu árið 2022.

Með þátttöku á mótinu opnast möguleiki fyrir Serenu Williams að taka þátt í Opna bandaríska meistaramótinu í einliðaleik. Hún kom til baka eftir að hafa lagt spaðann á hilluna í sumar og tók þátt á Wimbledon-risamótinu en meiddist þar í fyrsta leik.

Ásamt því að vera með systur sinni í tvíliðaleik ætlar Venus Williams að keppa í einliðaleik á mótinu. Saman hafa þær systurnar unnið fjórtán risatitla í tvíliðaleik og þrjú gull á Ólympíuleikunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×