Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Sigurgeir Þorkelsson skrifar 1. ágúst 2026 13:07 Tugþúsundir streymdu yfir landamæri hólmlendunnar í gær og fyrradag sem kallaði gagnrýni yfir ríkisstjórn Pedro Sanchez. Samsett Forsætisráðherra Spánar, Pedro Sanchez, hefur óskað eftir því að boðað verði í skyndi til fundar innanríkisráðherraráðs ESB. Tugþúsundir manna hafa á síðustu dögum synt af stað frá Marokkó yfir í hólmlenduna Ceuta sem er hluti Spánar en staðsett á meginlandi Afríku.
Atburðurinn hefur vakið athygli víða um Evrópu og hefur kallað gagnrýni yfir spænsk stjórnvöld. Þar hefur ríkisstjórn Ítalíu, sem leidd er af Georgiu Meloni, gengið hvað harðast fram. Hefur utanríkisráðherra Ítalíu meðal annars kennt nýlegri ákvörðun ríkisstjórnar Spánar, þar sem meira en milljón ólöglegra innflytjenda og hælisleitenda var veitt landvistarleyfi, um þann mikla fólksfjölda sem nú reynir að komast yfir landamærin. Ceuta er sjálfstjórnarsvæði Spánar nyrst í Afríku.Google Maps Utanríkisráðherra Spánar brást við ummælunum af hörku, sagði þau ekki sæmandi og sakaði kollega sinn um flokkspólitískt lýðskrum. Tekið er fram í umfjöllun Guardian að spænsk stjórnvöld hafi þegar lokað fyrir úrræðið. Ríkisstjórn Ítalíu hefur kallað eftir því að Spáni yrði tímabundið vikið úr Schengen-samstarfinu. Þegar gilda þó sérstakar takmarkanir innan Ceuta þegar kemur að Schengen-samstarfinu og að þau sem þaðan ferðast yfir til meginlandsins þurfi að sæta vegabréfaeftirliti. Spænskur hermaður stendur vaktina á ströndu Ceuta. AP/Antonio Sempere Í bréfi til framkvæmdastjórnar ESB segist Sanchez áhyggjufullur vegna viðbragða annarra leiðtoga við ástandinu sem skapaðist í Ceuta. Flestir hefðu kallað eftir stuðningi og samstöðu með Spáni en aðrir hefðu nýtt tækifærið til að ráðast að Spáni og kalla eftir því að ríkinu yrði vikið tímabundið úr Schengen-samstarfinu. Menn sem bíða þess að vera sendir aftur til baka til Marokkó. AP Sanchez er berorður í bréfinu þar sem hann segir viðbrögðin meðal annars stjórnast af fordómum og falsfréttum og ræðst á móti til árásar á ítölsk stjórnvöld. Sanchez bendir í bréfinu á að á seinustu fimm árum hafi helmingi færri komist ólöglega yfir landamæri Spánar en yfir landamæri Ítalíu. Spænsk stjórnvöld segja í yfirlýsingu að enginn hafi komið sjóleiðina yfir landamærin í gærkvöldi og vinna standi yfir við að vísa fólki frá Ceuta og aftur til Marokkó. Í það minnsta sextíu og sjö hafa látist á leiðinni yfir. Hafa þau ýmist drukknað eða verið troðin undir í þegar reynt var að komast á land.
Spánn Evrópusambandið Flóttamenn Marokkó Tengdar fréttir Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Stjórnvöld á Spáni hafa ákveðið að senda lögreglu og hermenn til borgarinnar Ceuta eftir að 49 þúsundir einstaklingar syntu þangað frá Marokkó á einum sólahring. Samkvæmt erlendum miðlum er aðallega um að ræða fullorðna karlmenn en talið er að um 7.000 séu undir lögaldri. 31. júlí 2026 07:27 Hafa sent þúsundir aftur til Marokkó Rúmlega 6.500 af þeim um átta þúsund farand- og flóttamönnum sem hafa gert sér leið til Ceuta, yfirráðasvæðis Spánar í Norður-Afríku, í þessari viku hafa verið sendir aftur til Marokkó. Þetta tilkynnti Fernando Grande-Marlaska, innanríkisráðherra Spánar í morgun. 21. maí 2021 10:15 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira
Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Stjórnvöld á Spáni hafa ákveðið að senda lögreglu og hermenn til borgarinnar Ceuta eftir að 49 þúsundir einstaklingar syntu þangað frá Marokkó á einum sólahring. Samkvæmt erlendum miðlum er aðallega um að ræða fullorðna karlmenn en talið er að um 7.000 séu undir lögaldri. 31. júlí 2026 07:27
Hafa sent þúsundir aftur til Marokkó Rúmlega 6.500 af þeim um átta þúsund farand- og flóttamönnum sem hafa gert sér leið til Ceuta, yfirráðasvæðis Spánar í Norður-Afríku, í þessari viku hafa verið sendir aftur til Marokkó. Þetta tilkynnti Fernando Grande-Marlaska, innanríkisráðherra Spánar í morgun. 21. maí 2021 10:15