Sport

FIFA hættir við að selja

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Gianni Infantino er forseti sambandsins.
Gianni Infantino er forseti sambandsins. Getty

Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA er hætt við umdeildar áætlanir um að selja hluti í félagi sem héldi utan um stórmót sín.

Breska ríkisútvarpið hefur eftir forseta sambandsins, Gianni Infantino, að hugmyndin hefði skapað þvílíka óeiningu að það hún færi ekki lengra.

Hann hafði boðið öllum knattspyrnusamböndum heims tæplega fimm milljarða króna fyrir að greiða atkvæði með tillögunni. Tillagan hefði hleypt fjárfestum að stórmótum sambandsins á borð við heimsmeistaramót karla og kvenna í knattspyrnu.

Þegar tilkynnt var um áform Infantino brást knattspyrnusamband Evrópu UEFA ókvæða við og ákvað á neyðarfundi að sniðganga heimsmeistaramót karla og kvenna yrði af þeim. Álfasambönd um allan heim mótmæltu áformunum einnig harðlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×