Evrópuþjóðirnar samþykktu að sniðganga HM Ágúst Orri Arnarson skrifar 30. júlí 2026 15:33 Alexander Ceferin forseti UEFA boðaði neyðarfund síðdegis. Kristy Sparow - UEFA/UEFA via Getty Images Knattspyrnusambönd þjóða innan Evrópu samþykktu einróma á neyðarfundi UEFA nú síðdegis að sniðganga heimsmeistaramótið í fótbolta ef áætlanir FIFA um utanaðkomandi fjárfestingar fá fram að ganga.
Greint var frá áætlunum Gianni Infantino forseta FIFA um utanaðkomandi fjárfestingar í fyrradag. Þar kom fram að knattspyrnusamböndum hefðu verið boðið háar fjárhæðir, 40 milljónir dollara, fyrir að samþykkja breytinguna og hleypa utanaðkomandi fjárfestum að fjársjóðum FIFA. Þeir sem myndu kjósa á móti breytingunum myndu ekki njóta góðs af nýfengnu fénu. Valur Páll Eiríksson, fréttamaður Sýnar og íþróttasiðfræðingur, útskýrði málið ítarlega í Sportpakka Sýnar í gærkvöld. Evrópska knattspyrnusambandið UEFA brást harkalega við í gær með harðorðri yfirlýsingu þar sem sagt var að „sál fótboltans“ væri ekki til sölu og boðaði öll knattspyrnusambönd Evrópu á neyðarfund í dag. Á fundinum nú síðdegis var ákveðið að knattspyrnusambönd Evrópu myndu sniðganga HM og allar keppnir FIFA ef áætlanir Infantino ganga eftir. Sky Sports, BBC, The Times og fleiri erlendir miðlar greindu frá tíðindunum og UEFA hefur nú sent frá sér yfirlýsingu til staðfestingar. Ólýðræðislegt og óhugsandi „Það er bæði óábyrgt og óverjandi að tillaga af slíkri þýðingu fyrir knattspyrnuna hafi verið unnin í leyni og nánast samþykkt án nokkurs marktæks samráðs við þá sem falið er að gæta íþróttarinnar. Þetta er ekki aðeins alvarlegur brestur í forystu, heldur afsal FIFA á skyldu sinni sem verndari alþjóðlegrar knattspyrnu... Landsambönd um allan heim standa nú frammi fyrir úrslitakostum: að samþykkja óafturkræft yfirtöku á stærstu mótum knattspyrnunnar eða bera afleiðingarnar. Þetta er ekki „lýðræðisleg ákvörðun“, heldur stjórnun með hótunum – þvingunaraðgerð sem er óverðug stofnun sem falið er að gæta alþjóðlegrar knattspyrnu. En andstaða okkar nær mun lengra en aðeins að ferlinu. Um leið og utanaðkomandi fjárfestar eignast hlut í mótum FIFA breytist knattspyrnan að eilífu. Arðsemi verður varanleg skylda. Væntingar fjárfesta verða daglegur þrýstingur. Frá þeirri stundu verður hver ákvörðun um alþjóðlegt leikjadagatal, hver ákvörðun um keppnisfyrirkomulag og hver ákvörðun sem mótar framtíð knattspyrnunnar ekki lengur tekin með það að leiðarljósi sem þjónar íþróttinni best, heldur því sem þjónar hluthöfum best. Þetta líkan á ekki heima í alþjóðlegri knattspyrnu,“ segir í yfirlýsingu UEFA sem má lesa í heild sinni að neðan. Ekkert HM hjá stelpunum okkar á næsta ári? Evrópskar þjóðir munu sniðganga allar keppnir, karla og kvenna, á vegum FIFA en þar bera heimsmeistaramótin auðvitað hæst. Ekki þarf að eyða mörgum orðum í að útskýra hversu mikið fjárhagslegt áfall það yrði fyrir FIFA að missa Evrópuþjóðirnar út af HM. Fyrst myndi reyna á sniðgönguna þegar undankeppni HM kvenna 2027 hefst í október en Infantino hefur einmitt sett 19. september sem síðasta dag til að skila inn atkvæði. KSÍ tjáir sig um málið á morgun Fulltrúar úr stjórn Knattspyrnusambands Íslands sátu neyðarfundinn síðdegis. Stjórn KSÍ mun koma saman í fyrramálið og fjölmiðlum verða veitt viðtöl í kjölfarið, að sögn Ómars Smárasonar samskiptafulltrúa KSÍ. Fréttin hefur verið uppfærð. Yfirlýsing UEFA: UEFA og 55 aðildarsambönd þess standa saman sem eitt. Við höfnum einróma og afdráttarlaust tillögu FIFA um að færa eignarhald á heimsmeistaramótinu og öðrum mótum á vegum FIFA til einkafjárfesta. Ekki er hægt að meðhöndla heimsmeistaramótið sem fjárfestingarvöru. Það er ein mesta arfleifð knattspyrnunnar. Mótið hefur verið byggt upp af kynslóðum leikmanna, landsliða og stuðningsmanna í öllum heimsálfum. Enginn hluti þess ætti nokkurn tíma að vera afhentur einkafjárfestum. Heimsmeistaramótið er ekki til sölu. Það er bæði óábyrgt og óverjandi að tillaga af slíkri þýðingu fyrir knattspyrnuna hafi verið unnin í leyni og nánast samþykkt án nokkurs marktæks samráðs við þá sem falið er að gæta íþróttarinnar. Þetta er ekki aðeins alvarlegur brestur í forystu, heldur afsal FIFA á skyldu sinni sem verndari alþjóðlegrar knattspyrnu. Landsambönd um allan heim standa nú frammi fyrir úrslitakostum: að samþykkja óafturkræft yfirtöku á stærstu mótum knattspyrnunnar eða bera afleiðingarnar. Þetta er ekki „lýðræðisleg ákvörðun“, heldur stjórnun með hótunum – þvingunaraðgerð sem er óverðug stofnun sem falið er að gæta alþjóðlegrar knattspyrnu. En andstaða okkar nær mun lengra en aðeins að ferlinu. Um leið og utanaðkomandi fjárfestar eignast hlut í mótum FIFA breytist knattspyrnan að eilífu. Arðsemi verður varanleg skylda. Væntingar fjárfesta verða daglegur þrýstingur. Frá þeirri stundu verður hver ákvörðun um alþjóðlegt leikjadagatal, hver ákvörðun um keppnisfyrirkomulag og hver ákvörðun sem mótar framtíð knattspyrnunnar ekki lengur tekin með það að leiðarljósi sem þjónar íþróttinni best, heldur því sem þjónar hluthöfum best. Þetta líkan á ekki heima í alþjóðlegri knattspyrnu. Framtíð knattspyrnunnar getur ekki ráðist af væntingum þeirra sem hafa það að aðalskyldu að hámarka fjárhagslegan ávinning. Hagsmunir landsambanda, deilda, félaga, leikmanna og stuðningsmanna geta heldur ekki orðið undirgefnir arðsemi fjárfesta. Knattspyrnan getur ekki veðsett framtíð sína fyrir fjárhagslegan ávinning. Afstaða Evrópu er skýr. Við munum aldrei veita þessu líkani lögmæti okkar. Enginn hefur siðferðislegt vald til að selja það sem hann hefur aðeins í vörslu fyrir næstu kynslóð. Vegna umræðna dagsins munu engin landslið UEFA taka þátt í neinu móti á vegum FIFA svo lengi sem þessar tillögur eru enn til staðar, nema fallið hafi verið frá tillögunni í heild sinni og gefnar hafi verið bindandi tryggingar fyrir því að FIFA muni aldrei aftur opna stjórnkerfi sitt eða mót fyrir einkaeignarhaldi. Enginn ætti að vera í vafa: UEFA og aðildarsambönd þess munu berjast gegn þessum áformum af fullri einurð. Það koma tímar þegar stofnanir eru ekki dæmdar af því sem þær eru tilbúnar að samþykkja, heldur af því sem þær neita að gefa eftir. Þetta er ein af þeim stundum. Sumt er einfaldlega of mikilvægt til að selja. Heimsmeistaramót FIFA tilheyrir knattspyrnunni. Það mun það alltaf gera. Og svo lengi sem Evrópa hefur rödd, verður það aldrei til sölu.
FIFA UEFA KSÍ Deilur um Gianni Infantino Mest lesið Með innanbúðarupplýsingar um gífurleg áhrif Eiðs Smára Íslenski boltinn Harmsaga Mudryk heldur áfram Enski boltinn Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Enski boltinn Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Enski boltinn Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Íslenski boltinn Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Enski boltinn Ragnar bestur allra á úrtökumóti DP World Tour í dag Golf Evrópumeistararnir hófu titilvörn sína með pomp og prakt Fótbolti Gunnlaugur Árni í samstarf með Nike: „Hefur mikla þýðingu fyrir mig“ Golf Stórbrotin Ída Marín með þrennu í sigri Hammarby Fótbolti Fleiri fréttir Harmsaga Mudryk heldur áfram Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Evrópumeistararnir hófu titilvörn sína með pomp og prakt Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Með innanbúðarupplýsingar um gífurleg áhrif Eiðs Smára Stórbrotin Ída Marín með þrennu í sigri Hammarby Þróttarar komnir yfir í einvígi sínu gegn Njarðvík Jesus á skotskónum í stórsigri Börsunga Óttast að Róbert Frosti sé alvarlega meiddur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Mikael beittur kynþáttaníði Frysta egg frítt fyrir landsliðskonur Söguleg stund fyrir Viking í kvöld Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn „Enginn með heljarinnar tak á Heimi Guðjóns“ Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Spilað ofan í úrslitaleik kvenna: „Ha?! Ég þurfti að athuga þetta tvisvar“ Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Messi að kaupa hundrað prósent hlut í spænsku félagi Sjáðu mörk Haalands, asnaskap Mbappé og sjálfsmörkin í Þýskalandi Aníta Ýr slær í gegn í Yale háskólanum Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Haaland sýndi enga miskunn og sótti stigin þrjú í Portúgal Súr endir á Meistaradeildarkvöldi Hákonar og Lille Gjafir Inter urðu þeim að falli gegn Real Madrid Sjá meira