„Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Samúel Karl Ólason skrifar 30. júlí 2026 14:44 Ryder Williams bjargaði tíu ára dreng á baðströnd í Kaliforníu og hefur verið hylltur sem hetja fyrir vikið. AP Sextán ára strandvörður í Kaliforníu hefur verið hylltur sem hetja fyrir að bjarga tíu ára dreng úr gífurlegu brimróti um síðustu helgi. Donald Trump segist vilja bjóða táningnum í Hvíta húsið og heiðra hann eftir að myndband af björguninni fór í dreifingu á netinu.
Nathaniel Rai stóð í grunnu vatni á Seabright-ströndinni í Santa Cruz á laugardaginn þegar hann féll í ölduganginum og dróst út í sjó. AP fréttaveitan hefur eftir Ryder Williams, strandverðinum, að hann hafi séð Nathaniel falla og kallað strax eftir aðstoð, áður en hann hljóp á eftir honum. Hann náði fljótt til drengsins en hann hafði dregist um fimmtán metra út á sjó og hafði misst meðvitund. Útsogið gerði Ryder þó gífurlega erfitt að ná Nathaniel í land, eins og sjá má á myndbandinu hér neðar. Þrátt fyrir að aðrir reyndu að koma honum til aðstoðar, þá var öldurótið það mikið að þó nokkrar tilraunir þurfti til að koma drengnum í var. Strandvörðurinn bað aðra um að koma sér úr öldurótinu og áttu sumir þeirra erfitt með að koma sjálfum sér í land. Naut hann þess í stað aðstoðar annars strandvarðar og saman tókst þeim að bjarga drengnum. Í samtali við AP segir Sumit Rai, faðir Nathaniels, að drengurinn sé sleginn eftir atvikið. Hann hafi fengið sjó og sand í lungun og hafi hóstað mikið síðan. Þá hugsi hann mikið um þetta og eigi erfitt með að sofa. Sumit sagðist hafa haft samband við Ryder og vonast til þess að geta þakkað honum í persónu. „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það.“ Donald Trump, forseti, segir Ryder mjög hugrekkan og segist ætla að bjóða honum í Hvíta húsið og heiðra hann fyrir hugrekkið. We’re going to bring this heroic young man, and his family, into the White House with, perhaps, the boy he saved, to give him a High Civilian Honor. Very brave, he deserves it! President DONALD J. TRUMP https://t.co/dGL15o1tIv— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) July 28, 2026
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira