Innlent

Greint frá því að minkum hafi verið sleppt út í Mosfellsdal

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Minkur var fyrst fluttur til landsins 1931, en hann slapp fljótlega út í villta náttúru. Landnámi hans lauk árið 1975 þegar hann tók sér bólfestu í Öræfasveitinni.
Minkur var fyrst fluttur til landsins 1931, en hann slapp fljótlega út í villta náttúru. Landnámi hans lauk árið 1975 þegar hann tók sér bólfestu í Öræfasveitinni. mynd/sigrún bjarnadóttir

Svo virðist sem minkum hafi verið hleypt út í Dalsbúi í Mosfellsbæ, síðasta minkabúinu á Íslandi. Frá þessu greinir Helga Skowronski í Facebook-hópnum Íbúar í Mosfellsdal. Hvorki Helga, Ásgeir Pétursson eigandi Dalsbús né lögregla vildu ræða við Vísi þegar eftir því var leitað.

Samkvæmt athugasemdum við færsluna hefur sést til minks í morgunsárið.

„Við höfum ekki orðið vör við mink en ég verð heima með hundinn í dag,“ segir Tómas Atli Ponzi, bóndi að Brennholti í Mosfellsdal. „Þetta er alveg skelfilegt fyrir lífríkið, fyrir fuglalífið og allt fólkið hér og náttúruna.

Tómas heldur meðal annars hænur og segist hafa misst allt að 20 hænur þegar minkar hafa sloppið frá búinu. Mikið hafi verið kvartað undan minkabúinu en ekkert að gert.

„Það eru þrír minkaveiðimenn reglulega hér í dalnum að fylgjast með og athuga hvort það eru minkar á svæðinu. Það segir sína sögu,“ segir Tómas.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×