Veður

Allt að sau­tján stig og mildast á Suður- og Vestur­landi

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Um verslunarmannahelgina má búast við norðanstrekkingi og vætu fyrir norðan og austan en bjartviðri með köflum og þurrviðri í öðrum landshlutum.
Um verslunarmannahelgina má búast við norðanstrekkingi og vætu fyrir norðan og austan en bjartviðri með köflum og þurrviðri í öðrum landshlutum. Vísir/Vilhelm

Spáð er rigningu og súld á köflum á Norður- og Austurlandi í dag en léttskýjuðu og þurrviðri annars staðar á landinu. Hiti verður á bilinu sex til sautján stig, mildast á sunnan- og vestanverðu landinu. 

Í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands segir að lægð við Færeyjar og hæð við Grænland stýri veðrinu á landinu í dag. Búast megi við rigningu eða jafnvel strekkingi á norðan- og austanverðu landinu en annars hægari vindi og bjartviðri. 

Spáð er hviðóttum vindi á sunnanverðum Austfjörðum síðdegis, sem getur verið varasamt ökutækjum með vagna í eftirdragi.

Spákort fyrir klukkan 14 í dag. Veðurstofa Íslands

Á morgun dragi úr norðanáttinni á norðanverðu landinu og en hvessir aftur um kvöldið. Annars verði yfirleitt bjartviðri áfram og svipað veður á föstudag. 

Veðurspá verslunarmannahelgarinnar bjóði upp á norðanstrekking og vætusamt veður fyrir norðan og austan, en bjart með köflum og þurrviðri í öðrum landshlutum. Á frídegi verslunarmanna er spáð hæglætisveðri með smá skúrum á víð og dreif og áfram mildum hitatölum um mestallt land.

Veðurhorfur á landinu næstu daga: 

Á fimmtudag:

Norðlæg átt, 3-10 m/s, væta með köflum á Austurlandi og hiti 7 til 11 stig, en þurrt annars staðar með hita 12 til 19 stig. Styttir upp austantil síðdegis og hvessir heldur um kvöldið.

Á föstudag og laugardag:

Norðan og norðvestan 5-13 m/s og rigning með köflum, talsverð úrkoma á Norðurlandi, en þurrt að mestu sunnan- og vestanlands. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast syðra.

Á sunnudag:

Norðan- og norðvestankaldi og dálítil súld eða rigning á Norður- og Austurlandi, en annars yfirleitt léttskýjað. Fremur svalt fyrir norðan, en hlýtt syðra.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×