Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 28. júlí 2026 08:36 Loubeau var leystur frá störfum árið 2020 vegna „minniháttar“ brota. epa Lögregluyfirvöld á Bretlandseyjum hafa ekki viljað svara því hvers vegna ásakanir kvenna um kynferðisbrot bandarísks hermanns voru ekki rannsakaðar af lögreglu. Málin voru þess í stað sett í hendurnar á bandarískum hernaðaryfirvöldum.
Guardian hefur fjallað ítarlega um nokkur mál þar sem bandarískir hermenn við störf á Bretlandseyjum hafa verið sakaðir um kynferðisbrot og annað ofbeldi. Málin eiga það sameiginlegt að í öllum tilvikum afsalaði breska lögreglan forræði yfir málunum til bandaríska hersins. Allir brotamennirnir komust þannig hjá saksókn á Bretlandseyjum. Nýjasta málið varðar hermann að nafni James Loubeau, sem er grunaður um að hafa brotið gegn að minnsta kosti sex konum. Loubeau var upphaflega ásakaður um að hafa nauðgað tveimur breskum konum árið 2019. Þær leituðu til lögreglu en aðeins tveimur vikum síðar samþykkti lögregla að bandaríski herinn tæki við málinu. Loubeau var í kjölfarið sýknaður af hérrétti. Umfang brota Loubeau kom ekki í ljós fyrr en hann hlaut fimm ára dóm í Miami á Flórída í fyrra, fyrir að hafa ráðist á 19 ára gamla samstarfskonu á RAF Mildenhall herstöðinni árið 2019. Það mál var tekið til rannsóknar af Alríkislögreglunni en hvers vegna er ekki vitað. Saksóknarar vísuðu þá til brota gegn sex samstarfskonum og sex breskum konum og sögðu Loubeau líklegan til að brjóta aftur af sér. Verður hann því undir eftirliti í 20 ár eftir að afplánun hans lýkur. Samkvæmt Guardian hafa lögregluyfirvöld á Bretlandseyjum ekki viljað svara því hvers vegna þau gáfu eftir rannsókn umræddra mála en samkvæmt samningum milli Bretlands og Bandaríkjanna hafa hernaðaryfirvöld aðeins rétt á því að taka yfir mál þar sem bæði gerandi og þolandi eru hermenn eða mál þar sem hermenn brjóta af sér við störf. Brotin gegn bresku konunum hefðu þannig átt að vera rannsökuð af lögreglu. Hér má finna ítarlega umfjöllun Guardian.
Bretland Bandaríkin Kynferðisofbeldi Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira