Einfaldasta sagan er ekki alltaf sú sanna Sigurður Árni Reynisson skrifar 25. júlí 2026 08:31 Það tók mig langan tíma að átta mig á því að hugurinn hefur ótrúlega þörf fyrir skýringar. Hann þolir illa tómarúm. Þegar eitthvað gerist sem við skiljum ekki vill hann fylla í eyðurnar sem fyrst. Hann bíður sjaldnast eftir því að allar upplýsingar liggi fyrir heldur dregur ályktanir af því litla sem hann hefur í höndunum. Það merkilega er að sagan sem hann velur er ekki endilega sú sanngjarnasta eða líklegasta. Oftar en ekki er það sagan sem fellur best að gömlum sárum, gömlum ótta og þeirri mynd sem við höfum stundum ómeðvitað búið til af okkur sjálfum. Fyrir nokkru síðan upplifði ég slíkt augnablik. Ég var ekki boðaður aftur í hóp sem hafði skipt mig máli. Enginn sagði mér að ég væri ekki velkominn. Enginn gagnrýndi mig. Enginn útskýrði hvers vegna. Það eina sem gerðist var að síminn hringdi ekki. En í huga mínum gerðist miklu meira en í raunveruleikanum. Á örfáum sekúndum hafði hugurinn skrifað sögu sem virtist svo sannfærandi að mér datt ekki í hug að efast um hana. Ég passaði greinilega ekki inn. Ég var ekki nógu skemmtilegur. Ég var ekki nógu góður. Ég hafði engin gögn sem studdu þessar niðurstöður, en samt trúði ég þeim eins og þær væru staðreyndir. Það sem kom mér síðar mest á óvart var að sársaukinn snerist ekki aðeins um það að hafa ekki fengið boð. Ég fann að ég átti erfitt með tilhugsunina um að hitta þetta fólk aftur. Ég fann fyrir einhverju sem líktist bæði sorg og vörn. Hluti af mér vildi einfaldlega halda sig fjarri. Ekki vegna þess að nokkur hefði sýnt mér óvild heldur vegna þess að sagan sem hugurinn hafði skrifað var orðinn hluti af sjálfsmynd minni. Ég hafði ekki aðeins túlkað atburðinn, heldur hafði ég látið hann skilgreina eigið virði. Þegar ég fór að skoða þessa reynslu af meiri ró áttaði ég mig á því að ég þurfti ekki að afneita sársaukanum. Það hefði verið jafn ósanngjarnt gagnvart sjálfum mér og að trúa fyrstu hugsuninni. Það er eðlilegt að finna til þegar maður upplifir höfnun eða stendur frammi fyrir óvissu. En það er grundvallarmunur á því að finna til og að leyfa sársaukanum að verða höfundur sögunnar um hver maður er. Ég gat viðurkennt að mér hafði sárnað án þess að samþykkja um leið þá niðurstöðu að ég væri ekki nógu góður. Eftir því sem ég hef hugsað meira um þetta hef ég áttað mig á því að þetta er ekki aðeins mín saga. Þetta er saga sem birtist í ótal myndum á hverjum degi. Vinur svarar ekki skilaboðum og áður en dagurinn er liðinn höfum við sannfært okkur um að við höfum sagt eitthvað rangt. Foreldri fær hranaleg svör frá fullorðnu barni sínu og fær sektarkennd yfir einhverju í fortíðinni. Einstaklingur sækir um vinnu og þegar svarið lætur á sér standa verður þögnin smám saman að sönnun fyrir því að hann sé ekki hæfur. Maki er óvenju þögull eitt kvöld og áður en nokkur orð hafa verið sögð hefur hugurinn búið til sögu um sambandið. Í öllum þessum dæmum höfum við eitt tilvik, en hugurinn býr til heildarmynd af okkur sjálfum. Ég held að skömmin eigi stóran þátt í þessu. Hún hefur einstakan hæfileika til að fylla í eyðurnar þegar okkur skortir upplýsingar. Hún safnar ekki gögnum heldur staðfestingum. Hún spyr ekki fyrst: „Hvað gerðist?“ heldur: „Hvað segir þetta um mig?“ Þess vegna verða óljósir atburðir svo oft að persónulegum dómum. Skömmin leitar ekki sannleikans heldur samræmis. Hún vill að ný reynsla passi við gömlu söguna sem hún hefur hvíslað að okkur árum saman. Ef við höfum lengi borið með okkur þá trú að við séum ekki nóg, finnur hún leið til að nota nýja atburði sem sönnun fyrir því, jafnvel þótt þeir segi í raun ekkert slíkt. Nýlega las ég um rakhníf Occams, eina þekktustu hugmynd heimspekinnar. Hún er oft útskýrð þannig að þegar tvær skýringar útskýra sömu staðreyndir jafn vel sé skynsamlegt að byrja á þeirri sem krefst fæstra ósannaðra forsendna. Mér fannst þessi hugsun áhugaverð, en jafnframt fór ég að velta fyrir mér hvort við beitum henni stundum á undarlegan hátt gagnvart okkur sjálfum. Við teljum okkur vera að velja einföldustu skýringuna þegar við segjum: „Þetta gerðist vegna þess að það er eitthvað að mér.“ En í raun er það oft alls ekki svo einföld skýring. Hún byggir á ótal ósönnuðum forsendum um hvað annað fólk hugsar, hvað því finnst um okkur og hvaða ástæður liggja að baki ákvörðunum þess. Kannski er það ekki einföld skýring heldur einfaldlega kunnugleg skýring. Þar held ég að við séum oft að spyrja rangrar spurningar. Kannski eigum við ekki að spyrja hvaða saga sé einföldust heldur hvaða saga sé sönnust. Þessar tvær spurningar leiða okkur ekki alltaf á sama stað. Sannasta sagan viðurkennir oft að við vitum ekki allt. Hún skilur eftir pláss fyrir óvissu. Hún gerir ráð fyrir að fólk geti tekið ákvarðanir af ástæðum sem við þekkjum ekki, að aðstæður geti breyst og að lífið snúist stundum alls ekki um okkur, þótt sársaukinn reyni að sannfæra okkur um annað. Ég finn enn fyrir höfnun, verð enn sár og verð stundum enn fyrir vonbrigðum. Það hefur ekkert breyst. Það sem hefur breyst er að ég reyni ekki lengur að flýta mér að finna skýringu sem dæmir eigið virði. Ég reyni að sitja aðeins lengur með óvissunni. Ég spyr sjálfan mig hvort ég hafi í raun nægar upplýsingar til að komast að þeirri niðurstöðu sem hugurinn hefur þegar ákveðið. Ég spyr hvað ég viti og hvað ég sé aðeins að ímynda mér. Það gerir sársaukann ekki minni, en það kemur í veg fyrir að ég breyti honum samstundis í sjálfsdóm. Það er einmitt þetta sem raunveruleg sjálfsvinna snýst um. Ekki að finna sem fyrst svar við spurningunni: „Hvað er að mér?“ heldur að læra að þola óvissuna nógu lengi til að sannleikurinn fái tækifæri til að birtast. Það krefst meiri auðmýkt en ég gerði mér áður grein fyrir, því auðveldasta leiðin er oft að trúa fyrstu sögunni sem hugurinn segir. Erfiðara er að viðurkenna að við vitum ekki allt. Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að markmiðið með sjálfsskoðun sé ekki að finna einföldustu söguna um sjálfan sig heldur þá sönnustu. Og sannasta sagan er sjaldnast sú sem skömmin hvíslar fyrst. Hún er yfirleitt flóknari, mýkri og mannlegri. Hún tekur mið af því sem við vitum, en líka því sem við vitum ekki. Hún leyfir okkur að finna til án þess að gera tilfinninguna að dómi. Hún gefur okkur ekki alltaf skjót svör, en hún gefur okkur eitthvað sem er miklu verðmætara: frelsið til að hætta að skilgreina eigið virði út frá fyrstu sögunni sem hugurinn skrifar þegar lífið skilur eftir tómarúm. Höfundur er mannvinur og kennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurður Árni Reynisson Mest lesið Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Skoðun Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Freyja Þórisdóttir skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Sjá meira
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun