Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. júlí 2026 13:15 Christos Tzolis hefur skorað 9 mörk í 33 landsleikjum fyrir Grikkland. Getty/Stuart MacFarlane Englandsmeistarar Arsenal hafa samið við vængmanninn Christos Tzolis sem kemur til félagsins frá Club Brugge.
Arsenal borgar belgíska félaginu 34 milljónir punda sem er það mesta sem lið í belgísku úrvalsdeildinni hefur fengið fyrir einn leikmann. Tzolis er ætlað að leysa af belgíska landsliðsmanninn Leandro Trossard sem Arsenal seldi til tyrkneska félagsins Besiktas í sumar. Welcome to The Arsenal, Christos Tzolis 🙌— Arsenal (@Arsenal) July 23, 2026 Tzolis er 24 ára grískur landsliðsmaður sem var hjá enska félaginu Norwich City frá 2021 til 2024 en var lánaður í tvígang, fyrst til Twente í Hollandi og svo til Fortuna Düsseldorf í Þýskalandi. Club Brugge keypti hann á sex milljónir punda frá Norwich í júlí 2024 en hann lék því tvö tímabil með belgíska félaginu og hækkaði vel í verði. Tzolis er orkumikill og áræðinn vængmaður og hans besta staða er á vinstri vængnum þótt hann geti spilað allt í kringum fremsta mann. Tzolis var með 17 mörk og 23 stoðsendingar í 36 leikjum í belgísku deildinni á síðustu leiktíð en tímabilið á undan var hann með 16 mörk og 10 stoðsendingar í 38 leikjum. Hann bætti því leik sinn á milli tímabila. „Christos spilar yfirleitt vinstra megin en getur leyst allar stöður í framlínunni,“ sagði Andrea Berta, yfirmaður íþróttamála hjá Arsenal. „Hann er með frábærar afgreiðslur með báðum fótum, blómstrar í þröngum rýmum og býr yfir ótrúlegri tæknilegri getu,“ sagði Berta. „Christos hefur skilað framúrskarandi tölum hvað varðar mörk og stoðsendingar síðustu þrjú tímabil og hann er leikmaður sem mun hækka tæknileg gæði hópsins okkar, auk þess að koma með jákvæða orku, eldmóð og sterkt hugarfar inn í liðið,“ sagði Berta. 💬 “It’s absolutely amazing to sign for the champions of England.” Our exclusive interview with Christos Tzolis features his Premier League experience, his pride at joining The Arsenal and much more 📺— Arsenal (@Arsenal) July 23, 2026
Enski boltinn Arsenal FC Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Tielemans tók vítið með Bruno Enski boltinn Hver var í flottustu treyjunni? Íslenski boltinn Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Fótbolti Fleiri fréttir Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Sjá meira