Formúla 1

Keyrir gamla bíla til að við­halda ást sinni á For­múlu 1

Andri Broddason skrifar
Fernando Alonso, tvöfaldur heimsmeistari og ökuþór Aston Martin þarf að keyra gamla bíla til að minna sig á hvað Formúla 1 er skemmtileg.
Fernando Alonso, tvöfaldur heimsmeistari og ökuþór Aston Martin þarf að keyra gamla bíla til að minna sig á hvað Formúla 1 er skemmtileg. Vísir/Getty

Fernando Alonso er að íhuga framtíð sína í Formúlu 1 en hann er elsti ökumaður sem keppir þar. Spánverjinn er orðinn 44 ára og er að keppa á sínu 24. tímabili í Formúlu 1.

Bíll Aston Martin hefur verið gríðarlega hægur á þessu tímabili í Formúlu 1 enda var byrjað að hanna bílinn mjög seint. Alonso ætlar að endurhugsa framtíð sína í íþróttinni í sumarfríinu sem hefst eftir ungverska kappaksturinn um helgina.

Fernando Alonso hefur talað opinskátt um að hann sé ekki aðdáandi núverandi kynslóð bíla í Formúlu 1. Ekki hjálpar að Aston Martin-bíllinn er með hægustu bílunum og hefur Fernando Alonso aðeins fengið eitt stig á þessu tímabili.

Alonso er elsti ökumaðurinn í Formúlu 1 og hefur keppt þar í óralangan tíma. Hann viðurkenndi í viðtali fyrir belgíska kappaksturinn sem fór fram um síðustu helgi að hann hefur þurft að keyra gömlu Formúlu 1 bílana sína til að viðhalda ást sinni á íþróttinni.

Það er ekki algengt að ökumenn eigi gamla Formúlu 1-bíla en Alonso hefur eignast Mclaren-bifreið sína frá 2007 og Ferrari-bifreið sína árið 2010.

Gengi Aston Martin hefur ekki verið gott en Alonso vill ekki að það hafi áhrif á ákvörðun hans um að halda áfram. Adrian Newey hefur gengið til liðs við Aston Martin en hann hefur hannað nokkra af sigursælustu bílum sögunnar. Þar á meðal Red Bull bifreiðina árið 2023 sem vann 21 keppni af 22 mögulegum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×