„Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Hjörvar Ólafsson skrifar 21. júlí 2026 21:47 Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals, sagði taktíkst upplegg sitt hafa mistekist í fyrri hálfleik. Vísir/Vilhelm Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals, skoraðist ekki undan ábyrgð á 7-1 tapi liðsins gegn Breiðabliki í Bestu-deild kvenna í fótbolta í kvöld. „
Þetta var þungt kvöld og frammistaðan alls ekki nógu góð sérstaklega í fyrri hálfleik. Ég tek það bara á mig hversu illa við mættum til leiks og hvernig þetta fór í fyrri hálfleiknum,“ sagði Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals, að leik loknum. „Taktískt upplegg mitt gekk engan veginn upp og þær áttu mjög auðvelt með að leysa þá pressu sem ég lagði upp með. Hæfileikarírkir leikmenn þeirra fengu of mikið pláss og tíma til þess að athafna og því fór sem fór,“ sagði Matthías enn fremur. „Við fórum yfir hlutina í hálfleik og náðum að vera nær þeim í seinni hálfleik. Leikur okkar batnaði þegar líða tók á leikinn en það er svo sem bara vera saga okkar í sumar. Það tekur okkur of langan tíma að komast í takt við leikina og það er eitthvað sem við þurfum að skoða,“ sagði hann. „Það er jákvætt að sjá Röggu skora og innkomuna hjá Emmu. Ég næ eflaust að tína einhverja fleiri jákvæða mola þegar ég horfi á leikinn aftur. Hins vegar er ljóst að við þurfum að gera mikið mun betur í næstu leikjum ef við ætlum að snúa genginu við. Það eru mikil gæði í þessum leikmannahópi og nú er það bara undir mér og leikmönnum mínum komið að sýna það inni á vellinum í lengri tíma í leikjum okkar,“ sagði Matthías um framhaldið.
Íslenski boltinn Besta deild kvenna Valur Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Finnur til með Arnari Handbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Fleiri fréttir FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Manzambi reyndist hetja Aston Villa Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Elísabet tjáir sig: Grátlega nálægt draumnum í þrígang Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - ÍBV 2-1| Grindavík/Njarðvík vann síðasta heimaleikinn á tímabilinu Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð í miklum hitaleik Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Syndaaflausn Infantino: „Páfinn yrði himinlifandi“ Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Bjarni Jó hættur Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Sjá meira