Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Jakob Bjarnar skrifar 21. júlí 2026 10:20 Gunnar Axel sem bæjarstjóri í Vogum, meðan allt lék í lyndi. Hann hefur mátt eiga við afleiðingar Covid eins og þúsundir Íslendinga. vísir/einar „Já, ég hef fundið fyrir depurð. Fólk skilur þetta ekki fyrr en það lendir í þessari stöðu. Það gerir enginn ráð fyrir því að missa heilsuna um miðjan aldur,“ segir Gunnar Axel Axelsson, fyrrverandi bæjarstjóri í Vogum.
Gunnar Axel skrifar afar athyglisverða grein sem hann birti á Vísi í morgun undir fyrirsögninni: „Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild“. Þar greinir hann frá því að hann sé einn af þeim sem þjást af langvarandi eftirköstum þess að hafa veikst af Covid. Varð algjörlega óvirkur „Síðan ég lauk störfum sem bæjarstjóri fyrir rúmlega einu og hálfu ári hef ég ekki verið að tjá mig mikið opinberlega um heilsu mína eða heilsutengd málefni almennt,“ segir Gunnar Axel í grein sinni. Þó að hann hafi nú reynt að gera allt sem í hans valdi stendur til að vinna að bættri heilsu sinni þá hefur hún því miður ekki þróast í rétta átt. „Líkt og hjá mörgum sem eru að glíma við sama sjúkdóm eða skylda sjúkdóma þá hefur einkennunum fjölgað og heilsan versnað. Þó svo að ég hafi alltaf verið mjög virk manneskja og hreyft mig mikið þá hef ég lítið getað hreyft líkama minn í rúm 2 ár og haft mjög takmarkaða getu til samfélagslegrar þátttöku. Og auðvitað hefur þetta haft umtalsverð áhrif líka á lífsgæði fjölskyldunnar minnar.“ Fólk lendir í félagslegri einangrun fyrr en varir Gunnar Axel segir í samtali við Vísi að ekki sé auðvelt að skrifa grein sem þessa. Félagsleg einangrun gerist miklu hraðar en fólk átti sig á. „Fólk getur lent í félagslegri einangrun á nokkrum vikum. Það er áfall að missa heilsuna og það hefur áhrif á sálarlíf fólks,“ segir Gunnar Axelsson sem hvetur hið opinbera til að bæta aðgengi að endurhæfingu og stuðningsþjónustu, sem ráðist af þörfum þessara sjúklinga. Það geti ráðið úrslitum um hvort fólk öðlist bætt lífsgæði, auki getuna til að sinna athöfnum daglegs lífs og stuðlað að þátttöku fólks í samfélaginu. Gunnar Axel segist því miður hafa orðið var við fordóma, ekki aðeins utan heilbrigðiskerfisins heldur einnig innan. Þetta sé orðið sérstakt áhugamál sitt en hann hefur helgað líf sitt opinberri þjónustu á sveitarstjórnarstiginu, sem aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði og bæjarstjóri í Vogum. Gunnar metur það svo að þúsundir manna eigi við þennan vanda að etja og munar um minna.
Sveitarstjórnarmál Heilbrigðismál Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Sjúklingar með langvarandi Covid endurheimta lyktarskynið Læknar í Lundúnum hafa aðstoðað tólf sjúklinga sem þjáðust af langvarandi eftirköstum Covid-19 við að endurheimta lyktar- og bragðskynið. 7. mars 2025 07:21 Golfkylfurnar of þungar og skatan eins og lambakjöt Fjölskyldumaður sem var með þeim fyrstu til að veikjast af Covid-19 hér á landi hefur enn ekki getað snúið aftur til starfa vegna heilsubrests. Hann er meðal þúsunda annarra Íslendinga sem glíma við langvarandi veikindi af slíkri sýkingu og hvetur heilbrigðiskerfið til að halda betur utan um hópinn. 7. nóvember 2023 20:01 Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira
Sjúklingar með langvarandi Covid endurheimta lyktarskynið Læknar í Lundúnum hafa aðstoðað tólf sjúklinga sem þjáðust af langvarandi eftirköstum Covid-19 við að endurheimta lyktar- og bragðskynið. 7. mars 2025 07:21
Golfkylfurnar of þungar og skatan eins og lambakjöt Fjölskyldumaður sem var með þeim fyrstu til að veikjast af Covid-19 hér á landi hefur enn ekki getað snúið aftur til starfa vegna heilsubrests. Hann er meðal þúsunda annarra Íslendinga sem glíma við langvarandi veikindi af slíkri sýkingu og hvetur heilbrigðiskerfið til að halda betur utan um hópinn. 7. nóvember 2023 20:01