Sport

Mætti ekki á úr­slita­leik HM til að mót­mæla Fifa

Andri Broddason skrifar
Aleksander Ceferin, forseti Uefa, hefur verið verulega ósáttur við reglubreytingar Fifa.
Aleksander Ceferin, forseti Uefa, hefur verið verulega ósáttur við reglubreytingar Fifa. Ryan Pierse/Getty Images

Aleksander Ceferin, forseti Uefa, mætti ekki á úrslitaleik heimsmeistaramótsins í fótbolta vegna ákvarðana Fifa í kringum mótið. Kornið sem fyllti mælinn var þegar leikbanni Folarin Balogun var aflétt.

Alþjóðaknattspyrnusambandið Fifa og Evrópska knattspyrnusambandið Uefa hafa lengi verið í deilum en nú virðist sambandið milli þeirra vera verra en oft áður.

Aleksander Ceferin var mættur í Mexíkóborg fyrir opnunarleik heimsmeistaramótsins en það var eini leikurinn sem hann mætti á. Honum var einnig boðið að fara á úrslitaleikinn sem fór fram í gær en ákvað að fara ekki.

Uefa fordæmdi ákvörðun Fifa um að aflétta leikbanni Folarin Balogun sem er leikmaður Bandaríkjanna. Donald Trump forseti Bandaríkjanna er sagður hafa áhrif á það að Balogun hafi ekki farið í leikbann.

Einnig hefur Uefa gefið það út að verðlag heimsmeistaramótsins hafi verið of hátt, liðin á mótinu séu of mörg og hálfleikssýning verði ekki hluti af keppnum Uefa. Einnig hefur Uefa tekið fram að það verður enginn rekinn af velli í keppnum þeirra fyrir það eitt að hylja munninn sinn með höndum.

Þegar Omar Artan dómari fékk ekki inngöngu til Bandaríkjanna þar sem hann átti að dæma leiki fyrir heimsmeistaramótið ákvað Uefa að dæma í Ofurbikarnum. Þar mætast sigurvegarar Meistaradeildarinnar og Evrópudeildarinnar.

Uefa hefur því tekið margar umdeildar ákvarðanir frá Fifa og snúið þeim sér í hag. Nær allt í mótinu sem var umdeilanlegt hefur Uefa tekið fram að það verði ekki hluti af keppnum á vegum Uefa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×