Innlent

Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ó­tíma­bærar undan­þágur

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Sunna Sæmundsdóttir les kvöldfréttir í kvöld.
Sunna Sæmundsdóttir les kvöldfréttir í kvöld. vísir

Formaður Félags eldri borgara segir lögregluna hafa brugðist manni á áttræðisaldri sem leitaði ítrekað aðstoðar vegna fjárkúgunar. Hann kallar eftir því að verkferlar verði endurskoðaðir. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum.

Utanríkisráðherra Frakklands segir ótímabært að ræða hugsanlegar undanþágur Íslands frá fiskveiðistefnu Evrópusambandsins og telur Íslendinga hafa engu að tapa segi þeir „já“ í ágúst. Við hittum hann og utanríkisráðherra Íslands sem áttu fund í dag.

Þá sjáum við myndir frá valdaskiptum í Bretlandi og heyrum frá nýjum forsætisráðherra þar í landi auk þess sem við hittum nýbakaða tvíburaforeldra sem hafa kært ákvörðun Fæðingarorlofssjóðs um synjun á greiðslum. Þau uppfylltu ekki kröfur eftir að hafa þurft að fara í bráðakeisara.

Við segjum einnig frá mögulegum vendingum í veðrinu og heyrum í íslenskum leikmanni á Spáni sem svaf varla fyrir fagnaðarlátum eftir spænskan sigur á HM.

Þetta og margt fleira á samtengdum rásum Sýnar, Vísis og Bylgjunnar klukkan 18:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×