Sólin gæti litið við í borginni um helgina Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 20. júlí 2026 12:07 Komin er dágóð tíð síðan sólin lék svona um borgarbúa. Vísir/Vilhelm Sólþyrstir höfuðborgarbúar mega hlakka hóflega til helgarinnar þar sem þrálát vestanáttin gerir sig líklega til að víkja fyrir rólegri norðanátt með björtu veðri á suðvesturhorninu.
Eftir að hafa fylgst með vinum fyrir austan og norðan ræða verð á loftkælingartækjum undanfarna daga eru Reykvíkingar og aðrir íbúar suðvesturhornsins orðnir langþreyttir. Nú gæti verið að rofa til. Veðurstofan spáir því að vestlægu áttirnar með sudda sínum og gráma haldi sína leið á föstudaginn. „Við erum í vætutíð, sudda eða rigningu núna fram á fimmtudag. Þá eru þetta vestlægar átti en svo á þetta að snúast í rólega norðanátt á föstudeginum og þá er spáð sól á Suður- og Suðvesturlandi,“ segir Haraldur Eiríksson veðurfræðingur á Veðurstofunni. Hann slær þó varnagla enda eru fimm dagar talsverður tími í veðurspálíkanaheiminum. „Spá er alltaf bara spá en hún hefur verið stöðug síðustu daga. Maður getur engu lofað en það er líklegt að þetta verði svona á föstudaginn,“ segir hann. „Hitinn ætti að vera ágætur. Þetta er kannski svona fimmtán til átján gráður hérna sunnanlands.“
Veður Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Fleiri fréttir Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Sjá meira