„Þurfum að læra að stýra spennustiginu á milli verkefna“ Ester Ósk Árnadóttir skrifar 18. júlí 2026 19:13 Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, á hliðarlínunni í leik kvöldsins Vísir/Pawel „Þetta var ekki góður leikur hjá okkur, mikið af tæknifeilum. Við vorum bara ekki líkir sjálfum okkur. Við vorum að taka góð hlaup bak við vörnina og þá var sendingin kannski of löng, þannig einfaldar sendingar voru að klikka.“ sagði Sölvi Geir Ottesen Jónsson þjálfari Víkings eftir fyrsta tapleik liðsins í Bestu deildinni í sumar gegn Þór á Akureyri í dag, 2-1. „
Það vantaði meiri grimmd hjá okkur og hraða á boltann. Við vorum alveg að koma okkur í góðar stöður, fengum góð færi til að koma okkur yfir. Við vorum klaufar fyrir framan markið og síðan er okkur bara refsað með tveimur hornspyrnum frá Þórsurum. Allt hrós á Þórsara, þeir börðust eins og ljón í leiknum.“ Það voru margar breytingar gerðar á byrjunarliði Víkings en sjö nýir leikmenn komu inn í liðið frá síðasta leik og þá voru aðrir utan hóps sem spila yfirleitt. „Sennilega hefur það einhver áhrif inn í liðið, leikmenn sem hafa ekki spilað í lengri tíma en við erum með stóran hóp og góða leikmenn sem geta komið inn í þetta. Ég taldi þetta vera besta liðið í dag og tek bara ábyrgð á því. Við vorum alveg að spila ágætis fótbolta fyrir utan klaufa mistök og ákvarðanatökur inn á milli en við sköpum meira en Þórsarar og við komum okkur í betri stöður og færi. Þannig að leikurinn hefði alveg geta farið á okkur vegu og þá hefði þessi spurningin verið öðruvísi.“ Víkingar eru nýkomnir úr leik í forkeppni Meistaradeildar Evrópu þar sem þeir komust í næstu umferð á milli þess sem þeir spila í Bestu deildinni. „Við erum í mikilli törn núna og við þurfum róta í hópnum, halda mönnum ferskum og ég taldi þetta bara vera leiðin með framhaldið í huga. Við þurfum líka aðeins að horfa fram í tímann, það tókst ekki í dag en við þurfum bara að læra af því. Við þurfum að læra að vera í þynnku vegna Evrópuleikja, það eru miklar tilfinningar í Evrópu og síðan stuttu síðar aftur komnir í Bestu deildina. Fljúga norður og spila á móti Þór þannig það er hægara sagt en gert að ná spennustiginu aftur upp á sama spennustig og það var fyrir leikinn á móti Györ. Það hefur sýnt sig síðustu ár að þetta er erfiður kafli hjá félagsliðum að fara í gegnum þessa törn en við þurfum að læra af því. Við þurfum að búa til einhvers konar mynd í hausnum og læra hvernig við stýrum spennustiginu á milli verkefna.“
Besta deild karla Víkingur Reykjavík Þór Akureyri Mest lesið Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Enski boltinn Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Segir Barcola ekki í vandræðum Enski boltinn Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Körfubolti Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Fleiri fréttir Víkingur - ÍA | Íslandsmeistararnir fá Skagamenn í heimsókn Breiðablik - Keflavík | Bikarmeistararnir fá erfiðan heimaleik Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn Sjá meira