Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Sunna Sæmundsdóttir skrifar 18. júlí 2026 13:02 Gísli Már Gíslason líffræðingur. Moskítófluga til hægri. Vísir/Getty Vel gengur að útrýma annarri af tveimur tegundum móskítóflugunnar sem fundust hér á landi síðasta sumar. Þrátt fyrir að hin tegundin hafi enn ekki sést er líffræðingur ekki tilbúinn að afskrifa fluguna.
Flestum er það líklega í fersku minni þegar moskítóflugur tóku að finnast hér á landi í fyrra. Skordýraáhugamaður í Kjós fékk bæði karl- og kvenflugu einnar tegundar flugunnar í gildru og grannt hefur verið fylgst með þróuninni síðan. Líffræðingurinn Gísli Már Gíslason segir hana enn ekki hafa sést í ár. „Hún lifir í útihúsum og kjöllurum yfir veturinn sem fullorðin fluga en síðan þarf hún að makast og verpa eggjum í vötn. Hún þarf líka að ná í máltíð, bíta spendýr og sjúga blóð og við héldum að við ættum von á fyrstu göngu nú um síðustu mánaðamót. En það hefur ekki gerst,“ segir Gísli. Hann bendir á að flugan geti þó lifað við ýmiss konar aðstæður og sé algengasta moskítóflugan í Evrópu. Þar sem hún er ný hér á landi sé enn óvíst hvort hún fari seinna af stað í íslensku veðráttunni. „Þannig ég vill ekki afskrifa hana fyrr en sumarið er búið.“ Hin tegund flugunnar fannst í hesthúsi á Suðurlandi og þar sem hún hélt sig á afmörkuðum stað var gripið til þess ráðs að reyna að útrýma henni og kæfa lifrunar. „Þær eru með öndunarpípur sem þær setja upp úr yfirborði vökvans sem er í svona haughúsum og í þessu tilfelli er held ég verið að setja einhvers konar sílíkonefni yfir. Þá geta þær ekki andað og þá ætti þetta að vera hægt. En það þarf að ná jafnri dreifingu yfir allt haughúsið og helsta vandamálið er kannski að þau eru stór þessi haughús.“ Ætlunarverkið virðist þó vera að ganga. „Það var svo mikið af þessari moskítóflugu, hún var veidd í hundraðatali þegar komið var inn í húsið. Og hvernig stendur það núna? Það eru bara tugir,“ segir Gísli Már. Fjallað var um mögulega útbreiðslu moskítóflugu hér á landi í sjónvarpsfréttum Sýnar síðasta haust. Klippuna má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.
Skordýr Moskítóflugur Tengdar fréttir New York Times segir Ísland vera moskítólausa paradís Það þekkja það ef til vill margir sem ferðast hafa til fjarlægari landa hversu hvimleiðar moskító-flugur geta verið. 3. nóvember 2016 15:01 Nýr landnemi á Íslandi ratar í heimspressuna Fréttir af komu moskítóflugunnar til Íslands hafa nú ratað í heimspressuna. Fjölmiðlar í Bretlandi og Danmörku hafa meðal annars greint frá komu þessa nýja landnema til Íslands í dag og sett í samhengi við áhrif loftlagsbreytinga. 21. október 2025 14:14 Tegundin sé líklega komin til að vera Moskítóflugan sem fannst í Kjós um helgina er af tegund sem er algeng og útbreidd um alla Evrópu og þrífst vel í köldu loftslagi. Líklegt er að tegundin sé komin til að vera en Náttúrufræðistofnun fylgist með. 20. október 2025 12:40 Mest lesið Birtir skilaboð um uppsögn: „Kominn tími á að sannleikurinn komi í ljós“ Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Innlent Inga spurð út í Guðmund Inga: „Þér væri nær að stíga inn í eigin skítapott“ Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Fleiri fréttir „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Sjá meira
New York Times segir Ísland vera moskítólausa paradís Það þekkja það ef til vill margir sem ferðast hafa til fjarlægari landa hversu hvimleiðar moskító-flugur geta verið. 3. nóvember 2016 15:01
Nýr landnemi á Íslandi ratar í heimspressuna Fréttir af komu moskítóflugunnar til Íslands hafa nú ratað í heimspressuna. Fjölmiðlar í Bretlandi og Danmörku hafa meðal annars greint frá komu þessa nýja landnema til Íslands í dag og sett í samhengi við áhrif loftlagsbreytinga. 21. október 2025 14:14
Tegundin sé líklega komin til að vera Moskítóflugan sem fannst í Kjós um helgina er af tegund sem er algeng og útbreidd um alla Evrópu og þrífst vel í köldu loftslagi. Líklegt er að tegundin sé komin til að vera en Náttúrufræðistofnun fylgist með. 20. október 2025 12:40