Erlent

Á­kærður fyrir mann­dráp vegna skot­árásarinnar í Ála­borg

Freyja Þórisdóttir skrifar
Mikið viðbragð var á vettvangi í gær en fólk á svæðinu var hvatt til að leita sér skjóls. Mynd er úr safni.
Mikið viðbragð var á vettvangi í gær en fólk á svæðinu var hvatt til að leita sér skjóls. Mynd er úr safni. Getty

Fjörutíu og átta ára maður sem var færður fyrir dómara fyrir skömmu hefur verið ákærður fyrir manndráp og tilraun til manndráps í tengslum við skotárásina í Nørresundby norðan við Álaborg í gær. Hann hefur játað að hafa skotið sextíu og tveggja ára mann í gær með þeim afleiðingum að sá lést, auk lögreglumanns sem er særður.

Maðurinn var leiddur fyrir dómara klukkan tólf á staðartíma í dag vegna gæsluvarðhaldsúrskurðar en þrír urðu fyrir skoti í árásinni í gær; lögreglumaður, almennur borgari og sá grunaði. 

Almenni borgarinn sem lést var sextíu og tveggja ára maður en ástand lögreglumannsins er sagt stöðugt. Er þetta meðal þess sem fram kemur í umfjöllun danska ríkisútvarpsins um málið. 

Hinn 48 ára gamli maður er grunaður um manndráp og tilraun til manndráps eftir að hafa skotið á lögreglumann, samkvæmt því sem fram kemur á danska ríkisútvarpinu en við hann hefur þegar játað manndrápið.

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×