„Sturlað“ að mæta Yamal eftir að hafa baðað hann Ágúst Orri Arnarson skrifar 18. júlí 2026 10:23 Lionel Messi og Lamine Yamal hafa notið góðra stunda saman. X Lionel Messi segir það „sturlað“ að mæta Lamine Yamal í úrslitaleik HM eftir að hafa verið myndaður með hann í baði sem ungabarn.
Árið 2007 unnu foreldrar Lamine Yamal góðgerðamyndatöku hjá Barcelona þar sem hinn tvítugi Messi hélt á fimm mánaða gömlu barni þeirra. NFL-goðsögnin Tom Brady ræddi við Messi á blaðamannafundi í New York í aðdraganda úrslitaleiks HM og spurði hann út í þetta. „Þessi mynd er ótrúleg. Sú staðreynd að við séum að mætast núna á heimsmeistaramótinu er sturluð.“ Messi comments on Lamine Yamal and the photo they took together when Lamine was a baby with @TomBrady (via @Fanatics) pic.twitter.com/hjbYDcYWpx— FOX Sports (@FOXSports) July 18, 2026 Lamine Yamal lék sinn fyrsta leik fyrir Barcelona 15 ára gamall og hefur erft treyju númer 10 frá Messi. Hann varð Evrópumeistari með Spáni árið 2024 og gæti nú, 19 ára gamall, orðið yngsti leikmaðurinn til að vinna bæði Evrópumótið og heimsmeistaramótið. „Hann er einn af þeim bestu í heimi um þessar mundir,“ sagði hinn 39 ára gamli Messi. Lionel Messi mætir barninu sem hann baðaði í frægri Unicef-myndatöku á sínum tíma, Lamine Yamal.Samsett/Getty Úrslitaleikurinn á morgun verður fyrsti, og mögulega síðasti, leikurinn milli Messi og Yamal. „Ég óska honum alls hins besta því velgengni hans verður velgengni Barcelona en við munum reyna að koma í veg fyrir að hann spili sitt besta. Spánn er með frábært lið, ekki bara hann. En hann er stórkostlegur leikmaður, stórstjarna. Hann er 19 ára og á allan ferilinn framundan. Ég óska honum alls hins besta, en við munum leggja allt í sölurnar til að tryggja að hann verði ekki meistari í þetta skiptið,“ sagði Messi. Messi sótti viðburð fyrir stuðningsmenn í gærkvöld ásamt markverði Argentínu, Emiliano Martinez, og fyrirliða Spánar, Rodri. Rodri speaks with @TomBrady on the best words to give your team as the captain(via @Fanatics) pic.twitter.com/CHQ7x7BWZQ— FOX Sports (@FOXSports) July 18, 2026 Rio Ferdinand, fyrrum landsliðsmaður Englands, og leikarinn Kevin Hart stýrðu viðburðinum. Tennisgoðsögnin Novak Djokovic og NBA stjarnan Kevin Durant tóku þátt í að spyrja spurninga ásamt Tom Brady. Brady hélt áfram deilum sínum við Logan Paul þar sem þeir rifust á sviðinu áður en sjöfaldur Super Bowl-meistarinn sló YouTube-stjörnuna, sem nú er WWE-stjarna, og leikmaður New York Knicks, Karl-Anthony Towns, þurfti að skilja þá að. Mikið sjónarspil allt saman. Dork pic.twitter.com/zKOfL6VUOE— Tom Brady (@TomBrady) July 17, 2026
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Sjá meira