Sport

Dag­skráin: Opna breska af stað, Vestri í Evrópu og Bestu mörkin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Scottie Scheffler með bikarinn og barnið sitt eftir sigurinn á Opna breska meistaramótinu í fyrra.
Scottie Scheffler með bikarinn og barnið sitt eftir sigurinn á Opna breska meistaramótinu í fyrra. Getty/Andrew Redington

Það eru beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag og kvöld eins og vanalega á fimmtudögum.

Opna breska meistaramótið í golfi, The Open, hefst í dag og fram undan eru fjórir frábærir dagar af risamótsgolfi á sportstöðvunum.

Þetta er fjórða og síðasta risamót ársins á eftir Mastersmótinu, PGA-meistaramótinu og Opna bandaríska mótinu.

Útsendingin hefst eldsnemma og verður í allan dag á Sýn Sport.

Þetta er líka risastór dagur fyrir Vestfirðinga því Vestri spilar þá sinn fyrsta heimaleik í Evrópukeppni þegar þeir fá Qarabag í heimsókn. Qarabag vann fyrri leikinn 3-0 og þetta er því brött brekka fyrir Vestramenn.

Ellefta umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta klárast með leik nýliða Grindavíkur/Njarðvíkur og FH en FH-konur sátu í toppsæti deildarinnar fyrir umferðina. Strax á eftir leiknum munu Bestu mörkin gera upp alla umferðina.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag.

Sýn Sport Ísland

Klukkan 19.50 hefst bein útsending frá seinni leik Vestra og Qarabag í 1. umferð undankeppni Evrópudeildarinnar.

Sýn Sport Ísland 2

Klukkan 19.05 hefst bein útsending frá leik Grindavíkur/Njarðvíkur og FH í elleftu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta.

Klukkan 21.20 hefjast Bestu mörkin þar sem öll ellefta umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta verður gerð upp.

SÝN Sport

Klukkan 05.30 hefst útsending frá Opna breska risamótinu í golfi, The Open.

Klukkan 10.30 hefst útsending frá Opna breska risamótinu í golfi, The Open.

Klukkan 15.30 hefst útsending frá Opna breska risamótinu í golfi, The Open.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×