Enskur úrslitaleikur gæti haft áhrif á Opna breska Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. júlí 2026 15:01 Sunnudagurinn 19. júlí er stór íþróttadagur. Þá fer úrslitaleikur heimsmeistaramótsins í fótbolta fram og úrslitin ráðast á Opna breska meistaramótinu í golfi. vísir/getty Ef enska fótboltalandsliðið kemst í úrslitaleik heimsmeistaramótsins gæti það haft áhrif á annan stóran íþróttaviðburð, Opna breska meistaramótið í golfi, sem fer fram sama dag.
Englendingar mæta Argentínumönnum í seinni undanúrslitaleiknum á HM í Atlanta í kvöld. Sigurliðið mætir Spánverjum í úrslitaleik í New Jersey á sunnudaginn. Sama dag lýkur keppni á Opna breska. Mark Darbon, framkvæmdastjóri Opna breska, vill forðast að þessir tveir stóru íþróttaviðburðir skarist. Úrslitaleikur HM hefst klukkan 20:00 að enskum tíma, um áttatíu mínútum eftir að keppni á Opna breska lýkur. Það gæti þó dregist ef úrslitin á Opna breska ráðast í þriggja holu bráðabana. Eins og staðan er núna hefst keppni á Opna breska á sunnudaginn á settum tíma. Staðan verður tekin aftur eftir leik Englands og Argentínu í kvöld og svo gæti farið að keppni á Opna breska á sunnudaginn verði flýtt til að sem flestir geti fylgst með báðum viðburðum. Með sigri á Argentínu í kvöld kemst England í úrslitaleik HM í fyrsta sinn í sextíu ár, eða síðan Englendingar urðu heimsmeistarar á heimavelli 1966. Keppni á Opna breska hefst á morgun en leikið er á Royal Birkdale-golfvellinum. Bandaríkjamaðurinn Scottie Scheffler á titil að verja á mótinu. Sýnt verður beint frá öllum fjórum keppnisdögum Opna breska á Sýn Sport. Bein útsending frá fyrsta hringnum hefst klukkan 05:30 í fyrramálið.
HM 2026 í fótbolta Opna breska Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira