Viðskipti innlent

Sam­einaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða

Árni Sæberg skrifar
Frá undirritun samrunasamnings.
Frá undirritun samrunasamnings.

Stjórnir SL lífeyrissjóðs og Almenna – Lífsverks lífeyrissjóðs hafa undirritað samrunasamning um tillögu að sameiningu sjóðanna. Verði tillagan samþykkt mun sameinaður lífeyrissjóður hefja starfsemi 1. janúar 2027. Sjóðurinn yrði fjórði stærsti lífeyrissjóður landsins með heildareignir að fjárhæð 1.035 milljarðar króna miðað við stöðu eigna í lok síðasta árs.

Í fréttatilkynningu þess efnis segir að með sameiningu lífeyrissjóðanna sé stefnt að því að styrkja grunn góðra lífeyrisréttinda með stærri sjóði, sem verði betur í stakk búinn til að mæta auknum kröfum um rekstraröryggi og veita betri þjónustu. Markmiðið sé jafnframt að ná fram hagræðingu í rekstri sem geti stuðlað að lægri kostnaði og hærri ávöxtun fyrir sjóðfélaga.

Tillaga um sameiningu og breytingar á samþykktum verði lögð fyrir sjóðfélagafund Almenna – Lífsverks og stjórnarfund SL og fjármála- og efnahagsráðherra í september 2026. Samruni sjóðanna sé háður því að nauðsynlegar breytingar verði gerðar á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og lögum um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda.

Fjölmargir fulltrúar sjóðanna tveggja voru viðstaddir ásamt fjármála- og efnahagsráðherra.

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, hafi verið viðstaddur undirritun samrunasamnings sjóðanna og undirritað viljayfirlýsingu um að hann muni beita sér fyrir nauðsynlegum lagabreytingum verði sameiningin samþykkt með þeim hætti sem gildandi lög og samþykktir sjóðanna áskilja.


Tengdar fréttir

Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn

Stjórnir SL og Almenna – Lífsverks hafa ákveðið að hefja könnunarviðræður um mögulega sameiningu sjóðanna. Sjóðurinn yrði sá fjórði stærsti á Íslandi með eignir upp á rúma þúsund milljarða króna.

Nýr sam­einaður líf­eyris­sjóður verði með þeim stærstu

Almenni lífeyrissjóðurinn og Lífsverk stefna að sameiningu eftir að sjóðfélagafundir beggja samþykktu tillögu þess efnis. Samruninn er háður samþykki Samkeppniseftirlitsins og staðfestingu fjármála- og efnahagsráðuneytisins á samþykktum sameinaðs sjóðs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×