Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Hólmfríður Gísladóttir skrifar 8. júlí 2026 08:40 Trump bölvaði bandamönnum sínum í sand og ösku, nema leiðtoga Tyrklands. Getty/Win McNamee Donald Trump Bandaríkjaforseti segir samtal Bandaríkjamanna og Írana vera komið á endastöð. „Ég nenni ekki að fást við þá lengur. Þeir eru úrhrök,“ sagði forsetinn í Ankara í morgun. „Þeir eru veikir, þeir eru grimmir... ofbeldisfullt fólk.“
Trump fór mikinn á blaðamannafundi með Mark Rutte, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, þar sem hann sagðist meðal annars afar óánægður með bandalagið og einstaka ríki. Á sama tíma lofaði hann Recep Tayyip Erdogan, leiðtoga Tyrklands, og Kína. Hvað varðar ummæli forsetans um Íran, hvort þetta þýðir að viðræðum milli Bandaríkjanna og Íran verður slitið og vopnahléð mögulega fellt úr gildi, er óvíst. En Trump var vægðarlaus í umsögn sinni. „Hvað mig varðar þá er bara tímasóun að eiga við þá. Þeir eru lygarar... Það er eitthvað að þeim. Þeir eru klikkaðir. Hvað mig varðar þá er þetta búið,“ sagði forsetinn. Hvað varðar Nató sagðist hann afar óánægður með það hvernig bandalagsríkin hefðu brugist við hugmyndum hans um að Bandaríkin eignuðust Grænland og með það að þau hefðu neitað að koma Bandaríkjunum til aðstoðar með Íran. Trump sagði Grænland mikilvægt Bandaríkjunum en ekki Dönum. Bandaríkin væru að verja gríðarlegum fjármunum til að verja Evrópuríkin frá Rússlandi en fengju ekkert í staðinn. Reiði hans virtist hins vegar sérstaklega beinast gegn Spánverjum en hann sagðist hafa skipað embættismönnum að hætta öllum viðskiptum við Spán. „Spánn er hræðilegur bandamaður í Nató,“ sagði Trump. „Þeir taka ekki þátt, þeir borga ekki.. Ég vil ekkert með Spán hafa. Hættum öllum viðskiptum við Spán og heimsóknum. Við viljum ekki neitt. Sjáum hvernig þeir koma hlaupandi til baka. Ó, þeir munu koma hlaupandi til baka.“
Donald Trump NATO Spánn Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira