Innlent

Hiti gæti náð tuttugu og fimm stigum um helgina

Sigurgeir Þorkelsson skrifar
Hlýjast verður á Austurlandi þessa vikuna.
Hlýjast verður á Austurlandi þessa vikuna. Vísir/Vilhelm

Suðvestlæg átt verður ríkjandi á landinu í dag, vindur þrír til tíu metrar á sekúndu. Skýjað er yfir landinu en bjart að mestu á austanverðu landinu. Hiti gæti náð allt að tuttugu og fimm stigum um helgina.

Sums staðar má vænta lítilsháttar vætu og rigna mun vestanlands í kvöld. Hita er spáð á bilinu ellefu til tuttugu stig, hlýjast á Norðaustur- og Austurlandi.

Í hugleiðingum veðurfræðings segir að öflug hæð sé frekar stöðug suðaustur af landinu næstu daga. Hæðin valdi suðvestlægum áttum sem þýði að búast megi við vætusömu og svölu veðri í flestum landshlutum, en björtu og hlýju veðri fyrir austan.

Veðrið helst svipað út vikuna en hlýnar á Austurlandi eftir því sem líður á vikuna. Samkvæmt spá gæti hiti þar náð tuttugu stigum á laugardag og allt að tuttugu og fimm stigum á sunnudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×