Varhugaverðar hviður á Suðurlandi Atli Ísleifsson skrifar 7. júlí 2026 06:33 Hiti verður á bilinu níu til átján stig, hlýjast inn til landsins á Norðausturlandi. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir suðaustanátt í dag þar sem víða verða 5 til 13 metrar á sekúndu en 13 til 18 metrar syðst á landinu og einnig á Reykjanesi um tíma í kringum hádegi.
Á vef Veðurstofunnar segir að hviður sem fylgi vindinum geti verið varhugaverðar fyrir vegfarendur, sérstaklega ökutæki sem taka á sig mikinn vind. Gul viðvörun er í gildi vegna hvassviðrisins á Suðurlandi til klukkan 14 í dag. Búast má mjög snörpum vindhviðum, allt að 30 metrum á sekúndu, undir Eyjafjöllum og í Mýrdalnum. Gul viðvörun er í gildi á Suðurlandi til klukkan 14 í dag. Veðurstofan Annars verður rigning víða um land, en bjart að mestu norðaustanlands. Dregur smám saman úr vindi og vætu eftir hádegi. Hiti verður á bilinu níu til átján stig, hlýjast inn til landsins á Norðausturlandi. Spár Veðurstofunnar gera annars ráð fyrir suðlægum áttum næstu daga og fram yfir helgi. Rigning eða skúrir öðru hverju, einkum á vestanverðu landinu, en oft bjartviðri á Norðausturlandi og þar eru talsverðar líkur á að hitinn fari yfir 20 gráður, einkum á sunnudag. Spákort fyrir klukkan níu í dag.Veðurstofan Á morgun verður suðlæg átt 3-10 m/s. Dálitlar skúrir á vestanverðu landinu, en bjart með köflum austantil. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast norðaustanlands. Bætir í úrkomu á Vesturlandi annað kvöld.Á fimmtudag og föstudag er útlit fyrir suðvestlæga átt með skúrum, en úrkomulítið austanlands. Hiti breytist lítið.Veðrið verður frekar svipað um helgina, en hitastig fer upp og einkum á sunnudag er spáð allt að 25 gráðum á norðaustanverðu landinu.
Veður Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Innlent Fleiri fréttir Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Sjá meira