Má gefa börnunum sínum peninga? Björn Berg skrifar 30. júní 2026 07:02 Björn Berg Gunnarsson svarar lesendum Vísis aðra hverja viku. Hægt er að senda honum spurningu í spurningaforminu hér fyrir neðan. Vísir/Vilhelm 71 árs kona spyr: „Má maður gefa börnunum sínum 2 milljónir og hvernig er það skattlagt?“ Þetta er algeng spurning, en því miður eru þessi mál afar sérkennileg hér á landi. Ég vísa alltaf beint á endurskoðendur eða skattalögfræðinga þegar fólk hefur áhuga á að gefa börnunum sínum peningagjafir, enda er mikilvægt að vera réttu megin við lögin og það getur verið snúið að átta sig á hvar mörkin liggja. Björn Berg fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengjast fjármálum, fjárfestingum og öðru. Hvað má gefa mikið? Í stuttu máli eru aðeins tækifærisgjafir skattfrjálsar hér á landi. Enginn virðist þó vita hve dýrar þær mega vera eða hve háar fjárhæðir foreldrar mega gefa börnunum sínum. Auðvitað er verulega óþægilegt að fá ekki að vita nákvæmlega hvað skattayfirvöld telja tækifærisgjöf, en þannig er þetta nú. Þetta veldur því að um samfélagið læðist hvísluleikur þar sem fólk segist hafa heyrt allar mögulegar fjárhæðir og eins og svo oft áður verður kaffistofan stórhættuleg, ætli fólk að sækja sér ábyrgar upplýsingar þangað. Hvernig er gjöfin skattlögð? Þú nefnir tvær milljónir króna. Ef við gefum okkur að skatturinn telji það of ríflega tækifærisgjöf verða börnin rukkuð um tekjuskatt og útsvar, sem getur verið svimandi hátt hlutfall, eða allt að 46,29%. Því er yfirleitt bent á fyrirframgreiddan arf, en þér er velkomið að gefa börnunum þínum peninga með þeim hætti, ef greiddur er 10% erfðafjárskattur. Ágætt er að hafa í huga að við fyrirframgreiðslu gilda ekki þau skattfrelsismörk sem fylgja uppgjöri dánarbús, en það er þó skárra að ríkið hirði 10% en nær helming gjafarinnar. Á fáum gjafapökkum stendur nefnilega „Frá mömmu til elsku Evu minnar og Daða fjármálaráðherra“. Góðar upplýsingar um fyrirframgreiddan arf má nálgast hér. Einnig er gott að leita til lögmanna eða annarra sem sérhæfa sig í erfðamálum. Hvers vegna má ekki gefa peningana sína? Erfitt er að átta sig á því hvers vegna foreldrum er gert svo dýrt að aðstoða börnin sína, hvert svo sem tilefnið kann að vera. Svona er þetta ekki í löndunum í kringum okkur. Norðmenn greiða engan skatt af peningagjöfum, frekar en í Svíþjóð. Í Danmörku má hvert foreldri færa hverju barni sínu allt að eina og hálfa milljón króna á ári án skatts og í Finnlandi má hvert barn fá um 1,1 milljón króna frá foreldrum sínum á þriggja ára fresti. Hærri fjárhæðir kosta 8% skatt (í stað allt að 46,29% hér). Í Bandaríkjunum má einstaklingur fá um 2,4 milljónir króna á ári í gjöf, en þar eru ævilöng skattfrelsismörk svo há að fæstir verða nokkru sinni skattlagðir vegna gjafa. Farðu varlega Ég er ekki sérfræðingur í skattamálum en hef rætt við nógu marga endurskoðendur og lögmenn til að átta mig á hve mikilvægt það er að fólk í þinni stöðu vandi sig. Ráðfærðu þig endilega við reyndan sérfræðing sem sér til þess að allt sé gert með réttum og löglegum hætti. Fjármálin með Birni Berg Fjármál heimilisins Börn og uppeldi Tengdar fréttir Tekur því að spara á verðtryggðri bók? 64 ára karlmaður spyr: „Sæll Björn. Ef þú geymir fé á verðtryggðum bankareikningi, er þá eðlilegt að greiða fjármagnstekjuskatt af verðtryggingunni? Reikningseigandi er ekki að hagnast neitt á því að geyma féð, það á eingöngu að halda sínu verðgildi. Er að hugsa þetta út frá barnabörnum sem eru að byrja að spara fyrir fasteign. Get ég með góðu móti ráðlagt barnabörnunum að leggja inn á verðtryggða reikninga, ef reikningurinn heldur ekki verðgildi sínu þar sem þú greiðir 22% fjármagnstekjuskatt af verðtryggingunni?“ 5. maí 2026 07:03 Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? 44 ára kona spyr: Sæll Björn. Ég er móðir ungra háskólanema. Getur þú reiknað fyrir þau hvað þau myndu spara á ári við það að kaupa ekki og reka ekki bíl? Jafnvel tekið dæmi um hve mörgum árum það gæti seinkað því að þau ættu fyrir útborgun í íbúð? 21. apríl 2026 07:02 Hvað á að gera við fermingarpeningana? 40 ára kona spyr: „Við erum að ferma dóttur okkar og veltum fyrir okkur hvað við eigum að gefa henni og hvað gera eigi við þá peninga sem hún mun fá að gjöf?“ 8. apríl 2026 07:04 Mest lesið Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Viðskipti innlent Rafnar fylgir Herði og segir upp Viðskipti innlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Sjá meira
Þetta er algeng spurning, en því miður eru þessi mál afar sérkennileg hér á landi. Ég vísa alltaf beint á endurskoðendur eða skattalögfræðinga þegar fólk hefur áhuga á að gefa börnunum sínum peningagjafir, enda er mikilvægt að vera réttu megin við lögin og það getur verið snúið að átta sig á hvar mörkin liggja. Björn Berg fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengjast fjármálum, fjárfestingum og öðru. Hvað má gefa mikið? Í stuttu máli eru aðeins tækifærisgjafir skattfrjálsar hér á landi. Enginn virðist þó vita hve dýrar þær mega vera eða hve háar fjárhæðir foreldrar mega gefa börnunum sínum. Auðvitað er verulega óþægilegt að fá ekki að vita nákvæmlega hvað skattayfirvöld telja tækifærisgjöf, en þannig er þetta nú. Þetta veldur því að um samfélagið læðist hvísluleikur þar sem fólk segist hafa heyrt allar mögulegar fjárhæðir og eins og svo oft áður verður kaffistofan stórhættuleg, ætli fólk að sækja sér ábyrgar upplýsingar þangað. Hvernig er gjöfin skattlögð? Þú nefnir tvær milljónir króna. Ef við gefum okkur að skatturinn telji það of ríflega tækifærisgjöf verða börnin rukkuð um tekjuskatt og útsvar, sem getur verið svimandi hátt hlutfall, eða allt að 46,29%. Því er yfirleitt bent á fyrirframgreiddan arf, en þér er velkomið að gefa börnunum þínum peninga með þeim hætti, ef greiddur er 10% erfðafjárskattur. Ágætt er að hafa í huga að við fyrirframgreiðslu gilda ekki þau skattfrelsismörk sem fylgja uppgjöri dánarbús, en það er þó skárra að ríkið hirði 10% en nær helming gjafarinnar. Á fáum gjafapökkum stendur nefnilega „Frá mömmu til elsku Evu minnar og Daða fjármálaráðherra“. Góðar upplýsingar um fyrirframgreiddan arf má nálgast hér. Einnig er gott að leita til lögmanna eða annarra sem sérhæfa sig í erfðamálum. Hvers vegna má ekki gefa peningana sína? Erfitt er að átta sig á því hvers vegna foreldrum er gert svo dýrt að aðstoða börnin sína, hvert svo sem tilefnið kann að vera. Svona er þetta ekki í löndunum í kringum okkur. Norðmenn greiða engan skatt af peningagjöfum, frekar en í Svíþjóð. Í Danmörku má hvert foreldri færa hverju barni sínu allt að eina og hálfa milljón króna á ári án skatts og í Finnlandi má hvert barn fá um 1,1 milljón króna frá foreldrum sínum á þriggja ára fresti. Hærri fjárhæðir kosta 8% skatt (í stað allt að 46,29% hér). Í Bandaríkjunum má einstaklingur fá um 2,4 milljónir króna á ári í gjöf, en þar eru ævilöng skattfrelsismörk svo há að fæstir verða nokkru sinni skattlagðir vegna gjafa. Farðu varlega Ég er ekki sérfræðingur í skattamálum en hef rætt við nógu marga endurskoðendur og lögmenn til að átta mig á hve mikilvægt það er að fólk í þinni stöðu vandi sig. Ráðfærðu þig endilega við reyndan sérfræðing sem sér til þess að allt sé gert með réttum og löglegum hætti.
Björn Berg fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengjast fjármálum, fjárfestingum og öðru.
Fjármálin með Birni Berg Fjármál heimilisins Börn og uppeldi Tengdar fréttir Tekur því að spara á verðtryggðri bók? 64 ára karlmaður spyr: „Sæll Björn. Ef þú geymir fé á verðtryggðum bankareikningi, er þá eðlilegt að greiða fjármagnstekjuskatt af verðtryggingunni? Reikningseigandi er ekki að hagnast neitt á því að geyma féð, það á eingöngu að halda sínu verðgildi. Er að hugsa þetta út frá barnabörnum sem eru að byrja að spara fyrir fasteign. Get ég með góðu móti ráðlagt barnabörnunum að leggja inn á verðtryggða reikninga, ef reikningurinn heldur ekki verðgildi sínu þar sem þú greiðir 22% fjármagnstekjuskatt af verðtryggingunni?“ 5. maí 2026 07:03 Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? 44 ára kona spyr: Sæll Björn. Ég er móðir ungra háskólanema. Getur þú reiknað fyrir þau hvað þau myndu spara á ári við það að kaupa ekki og reka ekki bíl? Jafnvel tekið dæmi um hve mörgum árum það gæti seinkað því að þau ættu fyrir útborgun í íbúð? 21. apríl 2026 07:02 Hvað á að gera við fermingarpeningana? 40 ára kona spyr: „Við erum að ferma dóttur okkar og veltum fyrir okkur hvað við eigum að gefa henni og hvað gera eigi við þá peninga sem hún mun fá að gjöf?“ 8. apríl 2026 07:04 Mest lesið Ekkert fannst í búi Omnom Viðskipti innlent Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Viðskipti innlent Sýndu fljúgandi Roadster Viðskipti erlent „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Viðskipti innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Viðskipti innlent Lokanir, lægðir og samviskubit Atvinnulíf Fljúga daglega til Boston Viðskipti innlent Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Viðskipti innlent Rafnar fylgir Herði og segir upp Viðskipti innlent Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Sjá meira
Tekur því að spara á verðtryggðri bók? 64 ára karlmaður spyr: „Sæll Björn. Ef þú geymir fé á verðtryggðum bankareikningi, er þá eðlilegt að greiða fjármagnstekjuskatt af verðtryggingunni? Reikningseigandi er ekki að hagnast neitt á því að geyma féð, það á eingöngu að halda sínu verðgildi. Er að hugsa þetta út frá barnabörnum sem eru að byrja að spara fyrir fasteign. Get ég með góðu móti ráðlagt barnabörnunum að leggja inn á verðtryggða reikninga, ef reikningurinn heldur ekki verðgildi sínu þar sem þú greiðir 22% fjármagnstekjuskatt af verðtryggingunni?“ 5. maí 2026 07:03
Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? 44 ára kona spyr: Sæll Björn. Ég er móðir ungra háskólanema. Getur þú reiknað fyrir þau hvað þau myndu spara á ári við það að kaupa ekki og reka ekki bíl? Jafnvel tekið dæmi um hve mörgum árum það gæti seinkað því að þau ættu fyrir útborgun í íbúð? 21. apríl 2026 07:02
Hvað á að gera við fermingarpeningana? 40 ára kona spyr: „Við erum að ferma dóttur okkar og veltum fyrir okkur hvað við eigum að gefa henni og hvað gera eigi við þá peninga sem hún mun fá að gjöf?“ 8. apríl 2026 07:04