Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Atli Ísleifsson skrifar 27. júní 2026 10:17 Stefán naut liðsinnis fjölmargra gesta á sviðinu. Mummi Lú Það ríkti sannkölluð hátíðarstemning í Hörpu þegar Stefán Hilmarsson steig á svið fyrir fullum sal á fyrri af tveimur uppseldum afmælistónleikum sínum. Tilefnið var sextugsafmæli söngvarans og um leið fjörutíu ár frá því hann hóf tónlistarferil sinn.
Á efnisskránni var farið yfir nær fjóra áratugi í tónlist, allt frá fyrstu skrefunum með lög á borð við Sókrates og 18 rauðar rósir yfir í mörg af vinsælustu lögum Sálarinnar hans Jóns míns, þar á meðal Ekkert breytir því, Hvar er draumurinn og fjölmörg önnur sem hafa fylgt landsmönnum í gegnum tíðina. Síðari tónleikarnir fara fram í kvöld en uppselt er á þá. Stebbi Hilmars og troðfull Eldborg.Mummi Lú Stefán naut liðsinnis fjölmargra gesta á sviðinu, meðal annars Gospelkórs Lindakirkju, Eyjólfs Kristjánssonar, sonars síns, Birgis Steins Stefánssonar, og þeirra Ernu Hrannar og Regínu Óskar, sem lögðu bæði til bakraddir og sungu með Stefáni í nokkrum lögum kvöldsins. Stemningin var svakaleg!Mummi Lú Á tónleikunum heiðraði Stefán einnig minningu vinar síns, Björgvins Halldórssonar, með flutningi á laginu Í gær, sem þeir sungu saman á plötu Björgvins árið 2003. Áhorfendur fengu einnig fyrsta sýnishornið úr væntanlegri kvikmynd, Hvar er draumurinn, þegar kynningarstikla var frumsýnd í salnum. Myndin byggir á söngleik sem saminn var upp úr lögum Sálarinnar og vakti mikla athygli þegar hann var settur upp af nemendum Verzlunarskóla Íslands fyrir tveimur árum. Stefán Hilmarsson með þeim Regínu Ósk og Ernu Hrönn. Mummi Lú Hápunktur kvöldsins kom þó undir lok tónleikanna þegar félagar Stefáns úr Sálinni hans Jóns míns komu óvænt á sviðið. Sveitin hefur ekki komið fram saman í um áratug og viðtökurnar létu ekki á sér standa. Salurinn stóð á fætur þegar þeir fluttu nokkur af þekktustu lögum sveitarinnar. Rætt var við Stebba fyrir tónleikana í kvöldfréttum Sýnar í gær. Sjá má innslagið í spilaranum að neðan. Stebbi Hilmars ávarpar Eldborgargesti. Stebbi í stuði.Mummi Lú Sálin hans Jóns míns steig á stokk í fyrsta sinn í rúman áratug.Mummi Lú Eyjólfur Kristjánsson var að sjálfsögðu á meðal gesta.Mummi Lú Stefán heiðraði minningu vinar síns og samferðamanns, Björgvins Halldórssonar, með flutningi á laginu Í gær.Mummi Lú Á efnisskránni var farið yfir nær fjóra áratugi í tónlist.Mummi Lú Birgir Steinn Stefánsson, sonur Stefáns Hilmarssonar, tók lagið.Mummi Lú Regína Ósk og Erna Hrönn. Mummi Lú Skjóttu, skjóttu, ááá, skjóttu!Mummi Lú Flottur Stebbi.Mummi Lú Rífandi stuð.Mummi Lú
Harpa Tónleikar á Íslandi Tónlist Samkvæmislífið Tímamót Mest lesið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Lífið Fjórðungur ekki með bókasafnskort Menning Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hrollvekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna Bíó og sjónvarp Keppast um að minnast Stewarts Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf Fleiri fréttir Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Sjá meira