Lífið

Greta Salóme á von á sínu þriðja

Sigurgeir Þorkelsson skrifar
Lesendum hverfur eflaust seint úr minni þegar Greta Salóme kom fram í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva ásamt Jónsa árið 2012 og flutti lagið Never Forget.
Lesendum hverfur eflaust seint úr minni þegar Greta Salóme kom fram í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva ásamt Jónsa árið 2012 og flutti lagið Never Forget. Eygló Gísla

Hjónin Greta Salóme Stefánsdóttir tónlistarkona og Elvar Þór Karlsson eiga von á sínu þriðja barni. Greta Salóme er landsmönnum kunn fyrir tónlistarhæfileika sína en hún leikur á fiðlu, syngur og semur lög.

Greta hefur tvisvar verið fulltrúi Íslendinga í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, árin 2012 og 2016. Þá hefur Greta hefur starfað sem fiðluleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands auk þess hún hefur starfað með Sinfonia Nord.

Tónlistarkonan Greta Salóme kemur fram á sónar í ár. Instagram

Greta gaf út plötuna In the Silence árið 2012 og gaf á árunum 2015 til 2018 út nokkrar smáskífur.

Hear Them Calling, framlag Íslands í Eurovision árið 2016 var pródúserað, samið og flutt af Gretu Salóme. Getty

Greta og Elvar kynntust þegar hann þjálfaði hana í líkamsræktarþjálfuninni Boot Camp. Þau trúlofuðu sig síðan í janúar árið 2018 og gengu í hjónaband þann 29. apríl árið 2023 í Mosfellskirkju.


Tengdar fréttir

Sonur Gretu Salomé og Elvars kominn með nafn

Sonur hjónanna, Gretu Salóme Stefánsdóttur tónlistarkonu og Elvars Þórs Karlssonar, var skírður við fallega athöfn liðna helgi. Drengurinn fékk nafnið Sólmundur. Frá þessu greinir Greta í færslu á Instagram.

Greta Salóme orðin móðir

Tónlistarkonan Greta Salóme Stefánsdóttir eignaðist í dag sitt fyrsta barn ásamt unnusta sínum, Elvari Þór Karlssyni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.