EURAM-samtökin voru stofnuð árið 2001 og vinna að því að efla rannsóknir, kennslu og samfélagslega umræðu um stjórnun, stefnumótun, nýsköpun, stjórnarhætti og tengd svið. Eyþór hefur gegnt fjölmörgum leiðtogahlutverkum innan samtakanna og verið í framkvæmdastjórn þeirra í átta ár.
„Ferill hans endurspeglar fyllilega allt það sem EURAM stendur fyrir. Framúrskarandi framlag hans felst sérstaklega í samþættingu fræðistarfa, forystu innan stofnana, stjórnendamenntunar, frumkvöðlastarfs, stjórnarhátta og samfélagslega þátttöku. Það er mitt mat að samstarfsmaður okkar, Eyþór Ívar Jónsson, sé fulltrúi þeirrar ábyrgu og hagnýtu fræðimennsku sem EURAM metur mikils og viðurkennir meðal sinna heiðursfélaga,“ segir Kathrin M. Möslein, fyrrverandi forseti EURAM í tilkynningu.
Eyþór hefur um árabil unnið að því að tengja þekkingu við framkvæmd í atvinnulífinu, bæði á Íslandi og á alþjóðavettvangi. Í gegnum störf sín við Copenhagen Business School, Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Seed Forum International, World Business Angel Investment Forum, Klak, Akademias, BAM og EURAM hefur hann byggt brýr milli fræðasamfélags, atvinnulífs og menntunar þvert á landamæri.
Eyþór er stofnandi og eigandi Akademias sem hefur byggt upp vettvang fyrir stjórnendamenntun, símenntun og vinnustaðaskóla. Hann hefur skrifað hundruð greina um viðskipti, efnahagsmál, nýsköpun og stjórnarhætti, meðal annars á vettvangi Innherja.
